151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[15:58]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þar held ég að við séum komin akkúrat að því sem hv. þingmaður sagði áðan þegar hann var að tala um ríkisstjórnina og veiruna, þetta er hálfgerð jóðsótt hjá henni og þar af leiðandi getur hún ekki útskýrt hverju úrræðin skila inn. Ríkisstjórnin myndi útskýra þetta ef úrræðin skiluðu einhverju og hún vissi það en í staðinn kemur hún bara með einhverjar hrútskýringar. Það segir sig sjálft að ef þau væru með mælikvarða sem sýndi að allar aðgerðir hefðu skilað rosalega góðum árangri þá væru þau með hverja einustu tölu niðurnjörvaða. En þau eru ekki með nein svör vegna þess að þau vita að þetta eru bara happa- og glappaaðgerðir. Síðan hæla þau sér af öllu því fjármagni sem þau jusu í þetta en skilaði kannski ekki neinu.