151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[15:59]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Þetta er einmitt vandamálið við að giska. Það sem ríkisstjórnin hefur gert í rauninni allan þennan faraldur er að giska á að þær aðgerðir sem beitt er eigi eftir að leysa málið. En þegar maður giskar þá er ekkert viðmið til að segja til um hvort þetta hafi verið rétt ágiskun eða ekki. Gott og vel, það má giska. En við erum með stjórnsýslu, faglega stjórnsýslu sem á að fara í gegnum ágiskanir stjórnmálamanna og vega og meta hver áhrif þeirra verða. En við fengum það aldrei heldur. Ráðherra á að sjá til þess að stjórnsýslan sinni því hlutverki sínu og skili slíkum greiningum til þingsins af því að hér tökum við síðan ákvarðanir um þessar fjárheimildir, hvort við eigum að fara í þær fjárheimildir fyrir þessi ágiskunarverkefni stjórnvalda eða einhver önnur. Við viljum nota almannafé vel og þá viljum við nota það í verkefni sem virka en ekki fara eftir geðþótta: Núna er norðanátt svo við skulum nota þessa aðferð.