fjáraukalög 2021.
Herra forseti. Ef ég man rétt er um mánuður síðan hæstv. ríkisstjórn kynnti síðasta Covid-pakkann sinn og við erum að fá fjáraukalagafrumvarpið, sem á að dekka kostnaðinn vegna þeirra aðgerða, inn núna í dag. Í dag eru, auk þessa þingfundardags, eftir sex þingfundadagar á þessu kjörtímabili. Í nefndunum er verið að vinna með 60 stjórnarfrumvörp og fimm stjórnarþingsályktunartillögur. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvað honum finnist um skipulagshæfni hæstv. ríkisstjórnar hvað þetta varðar og hvort þetta frumvarp sem við erum að tala hér um sé ekki allt of seint fram komið ef það á að klárast ásamt öðrum málum. Því að auðvitað klárum við ekki öll þessi 65 stjórnarmál sem eru í nefndunum, það er augljóst mál, og hv. stjórnarþingmenn hafa ekki látið okkur vita hver forgangurinn er í þeim efnum. En þetta frumvarp sem við ræðum hérna hlýtur þó að vera mjög framarlega á forgangslista þeirra.
Telur hv. þingmaður að þau hafi kannski verið að hugsa sér að sleppa við að leggja fram fjáraukalagafrumvarp og haldið einhvern veginn að fjárveitingavaldið væri bara upp í ráðuneytunum en ekki hér?