151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[16:03]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta var spurningin sem kom beint upp í hausnum á mér þegar ég sá ríkisstjórnina fyrst kynna þessar aðgerðir sínar. Ég áttaði mig ekki á því hvar fjárheimildir væru til fyrir aðgerðunum í fjárlögum. Ég fór að spyrjast fyrir um það óformlega og á mjög óformlegum nótum fékk ég þau svör að það væru til fjárheimildir fyrir þessu öllu, t.d. í almennum varasjóði. En almenni varasjóðurinn gengur ekki út á svona fjármögnun heldur er hann til þess að bregðast við ófyrirséðum, óvæntum útgjöldum. Við vorum nýbúin að samþykkja fjárlög þegar fram komu hugmyndir um þetta. Það hefði einfaldlega verið hægt að hafa einhvers konar aðgerðir í fjárlögum til þess að dekka fjárheimildir fyrir þær. En svarið sem ég fékk var sem sagt að fjárheimildirnar væru til eða að það yrði einhvern veginn fært á milli þannig að ekki þyrfti að fá nýjar fjárheimildir.

Það er rosalega skýrt að fjárveitingarvaldið er á þingi og þegar stjórnvöld ætla að búa til nýjar aðgerðir, og þetta er lykilatriði, þurfa þau að fjalla um þær aðgerðir á þingi og fá fjárheimild fyrir þeim sérstaklega. Það er algjört lykilatriði í fjárveitingavaldi og löggjafarvaldi að þetta sé virt. Og já, svörin sem ég fékk miðað við þær aðgerðir sem ég sá á hugmyndablaði ríkisstjórnarinnar rímuðu ekki við þá skyldu stjórnvalda að koma með nýjar hugmyndir kostnaðarmetnar og árangursgreindar til þingsins til afgreiðslu fjárheimilda. Það átti einfaldlega að skófla til fjármunum innan ramma, eins og alltaf er gert, og redda sér einhvern veginn þannig í gegnum það (Forseti hringir.) að framkvæmdarvaldið ætlaði bara að ráða og gera eins og því sýndist og brjóta þannig algjörlega (Forseti hringir.) þann augljósa múr sem á að vera á milli fjárveitingavaldsins og framkvæmdarvaldsins.