fjáraukalög 2021.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Nú fáum við þetta frumvarp til vinnslu í hv. fjárlaganefnd og samkvæmt minnisblaði frá Landspítalanum til heilbrigðisráðuneytisins þá er það svo að biðlistar hafa lengst á milli áranna 2020–2021. Ég held að það sé mjög alvarlegt hvernig staðan er þar. Í febrúar voru 3.625 einstaklingar á biðlista eftir skurðaðgerð, rúmlega 1.000 biðu eftir geðheilbrigðisþjónustu og 131 barn beið eftir þjónustu á BUGL. Þetta er mjög alvarleg staða. Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hann sé ekki tilbúinn til þess að koma í þá vinnu með mér að reyna að sannfæra meiri hlutann um að leggja fram breytingartillögu til að mæta þeim vanda.