151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[16:06]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta er ágætisdæmi um það hvernig lög um opinber fjármál virka í dag. Það er ákveðin stefnumörkun um biðlista í fjármálaáætlun frá ríkisstjórninni. Við höfum ekki hugmynd um hvað það kostar af því að það er ekki kostnaðargreining á því, en það er væntur árangur af þeim aðgerðum. Við fáum ekki að sjá í fjármálaáætlun hver staðan er. Hún hefur, eins og hv. þingmaður benti á, versnað en ekki batnað. Það þýðir að innan laga um opinber fjármál gæti ríkisstjórnin hagrætt, flutt á milli o.s.frv., til að bregðast við aukinni þörf inn í þessa stefnu um úrbætur, einkum á sviði biðlista, án þess að fara sérstaklega og biðja um fjárheimild fyrir því af því að það er þegar til heimild um þessa stefnu og þennan árangur. En þá þarf ríkisstjórnin að útskýra ef á einhvern hátt er farið fram úr fjárheimildum og varasjóðurinn dugar kannski ekki til og þá þarf kannski að sækja aukafjárheimild ef framúrkeyrslan er þeim mun meiri.