151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[16:08]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Herra forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir fína ræðu. Þingmaðurinn varði töluverðum hluta tímans í að tala um nýsköpun, nauðsynlega og mikilvæga, og í tengslum við Covid. Við getum svo sem tekið lengri umræðu um það. Ég er reyndar á þeirri skoðun, og ég held að við deilum henni, varðandi nýsköpun að þegar kemur að sköpun starfa tengist hún ekki endilega Covid heldur sé bókstaflega lífsnauðsynlegt fyrir okkur heilt yfir að leggja meiri rækt við hana.

En af því að ræðan var býsna Covid-miðuð, eins og margra annarra hér, þá langar mig að velta einu upp. Fyrir utan vinnumarkaðsaðgerðir er lúmskt inni í tveimur einskiptiskostnaðaraðgerðum annars vegar fjárheimild málefnasviðs ferðaþjónustu þar sem talað er um hækkun um 750 milljónir til að mæta ákvörðun ríkisstjórnarinnar um svokallaða ferðagjöf. Síðan kemur í útskýringum að þeir 1,5 milljarðar sem veittir voru í þetta síðast hafi ekki verið notaðar nema að hálfu og ef þetta nýtist allt núna verði restin sótt þangað. Þetta kemur inn á svipuðum tíma og við sjáum í kjölfar bólusetningarátaks, sem gengur býsna vel, að ferðaþjónustan er að glæðast. Kannski er þörf á einhverri annarri aðstoð og innspýtingu inn í ferðaþjónustuna en akkúrat þessari, þ.e. ferðagjöf, eins og dæmið frá því í fyrra sýnir.

Mér finnst rekstur hjúkrunarheimila svolítið stinga í augu, ef við tökum sjónaukann og horfum víðar yfir og horfum á sviðið án þess endilega að taka tillit til Covid. Þar er verið að veita milljarð inn í gat, eftirágat, þ.e. gat sem myndast hefur vegna ónógra daggjalda, og verið er að tala um að það gat sé núna á bilinu 3–4 milljarðar. Mig langar til að heyra hugleiðingar hv. þingmanns — ég missti af tækifærinu til að eiga orðastað við hæstv. fjármálaráðherra þannig að hér er bara staðgengill úr fjárlaganefnd — um það hvort þessum peningum, (Forseti hringir.) ferðaávísuninni, hefði kannski verið betur varið í að stoppa enn frekar í þetta gat sem er til komið (Forseti hringir.) vegna ónógra fjárveitinga í rekstur hjúkrunarheimila, hvort það hefði mögulega mátt hliðra til þar.