fjáraukalög 2021.
Forseti. Ég þakka svörin. Mig langar örsnöggt að fara yfir það að 1. maí síðastliðinn tók gildi eða stimplaðist inn umsamin stytting vinnutíma, klárlega með tilheyrandi kostnaði sem er ekki mætt. Það er hluti af vanda hjúkrunarheimilanna sem þau sjá fram á núna, akkúrat á því tímabili sem hv. þingmaður talar um og áfram, og það er líka hluti af biðlistavanda skurðstofu Landspítalans sem kom til tals áðan, að loka hefði þurft stofum. Það er ekki hægt að manna störf vegna þess að þar standa stjórnendur frammi fyrir því úrlausnarefni að það fjármagn sem er tekið til hliðar fyrir launakostnaði dreifist á færri í ljósi styttingar vinnutímans.
Þannig að ég velti fyrir mér: Nú fer stór hluti í vinnumarkaðstengd úrræði í þessum fjárauka. Það er alls ekki svo að það sé til eftirbreytni að nýta fjárauka til að mæta svona samningsbundnum hækkunum eða styttingu vinnutíma sem felur í sér færri vinnustundir. (Forseti hringir.) En telur hv. þingmaður að það séu líkur á því að þessum tiltekna vanda, sem er orðinn mikill bráðavandi þegar kemur að heilbrigðisstofnunum okkar, verði mætt í vinnu fjárlaganefndar þegar kemur að fjáraukanum? (Forseti hringir.) Sér hann fyrir sér að það sé vilji í nefndinni til að taka þá umræðu?