151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[16:14]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég ætla að leyfa mér að efast um að það verði einhver hljómgrunnur fyrir því. Þetta er hins vegar mjög áhugavert vandamál því að lífskjarasamningarnir með bæði styttingu vinnuviku og krónutöluhækkunum hafa þó nokkuð mikil áhrif á fólk sem er á lægri launum, sem er alla jafna fólk sem vinnur á hjúkrunarheimilum. Þar eru hlutfallslega fleiri láglaunastarfsmenn en eiga að vera. Á sama tíma er gert ráð fyrir meðallaunaþróun, hækkunum til málefnasviðanna og stofnana o.s.frv. og ef það er gert handa þeim málasviðum sem eru með láglaunastéttir almennt séð þá koma minni fjárheimildir þangað en lífskjarasamningarnir krefjast. Þannig að við sjáum ekki bara fyrir vanda vegna styttingar vinnuvikunnar heldur líka vegna munarins á krónutöluhækkun (Forseti hringir.) og almennri launaþróun í fjárheimildum á öllum málefnasviðum. Þetta er margslungið. (Forseti hringir.) Þetta er 6,5 milljarða vandi á málefnasviði 27 og 28 t.d., þannig að þessi vandi er gegnumgangandi.