fjáraukalög 2021.
Herra forseti. Miklar áskoranir eru fram undan í hagstjórn í landinu. Við horfum fram á mikinn hallarekstur ríkissjóðs sem kemur til með að aukast við þessi fjáraukalög, verði þau samþykkt hér, um rúma 8 milljarða kr. Síðan mælist verðbólgan sú hæsta síðan 2013 og vextir fara hækkandi. Allt er það áhyggjuefni. Þessi fjárauki kemur inn á málefni sem eru nauðsynleg, ég skal taka undir það hér. Eins og segir í frumvarpinu snýr langstærsti hluti tillagnanna að félags- og vinnumarkaðsúrræðum. Í atvinnuleysið og vinnumarkaðinn er verið að setja 9,8 milljarða kr. Allt er þetta nauðsynlegt, ég tek heils hugar undir það. Hér er átakið Hefjum störf og svo eru ráðningarstyrkir til fyrirtækja sem ég hef talað fyrir og flutti sérstaka breytingartillögu um við síðustu fjárlög. Til að mæta miklu atvinnuleysi á Suðurnesjum lögðum við þingmenn Miðflokksins til breytingartillögu við fjárlög um að setja töluverða fjármuni í það að bæta í ráðningarstyrki. Slíkir styrkir eru gott úrræði sem felst í því að atvinnurekendur geta ráðið til sín starfsmann sem hefur verið að leita sér að vinnu og fengið styrk frá ríkissjóði sem mun mæta að mestum hluta þeim launakostnaði sem því fylgir í sex mánuði. Þetta er gott úrræði. Svo er verið að framlengja tímabil tekjutengdra atvinnuleysisbóta. Allt eru þetta nauðsynleg úrræði og við í Miðflokknum styðjum þau að sjálfsögðu.
Atvinnuleysi er þjóðinni mjög dýrt og það er ekki bara kostnaðarsamt fjárhagslega heldur veldur atvinnulausum og fjölskyldum þeirra miklum andlegum erfiðleikum og ákaflega mikilvægt að ná því niður með öllum tiltækum ráðum. Verði hlutfall atvinnulausra áfram svona hátt kemur það til með að kosta ríkissjóð í kringum 40 milljarða kr. árlega. Það er gríðarlega há upphæð og þess vegna er mjög mikilvægt að ríkisstjórnin átti sig á því að það verður að leggja fram áætlanir um það hvernig við náum niður atvinnuleysinu en það er t.d. ekki að finna í fjármálaáætluninni sem við vorum að samþykkja hér í dag.
Það atvinnuleysi sem við glímum núna við er sambærilegt atvinnuleysi á árunum 1993–1995 sem var mjög hátt og algerlega óásættanlegt. Það er mjög mikilvægt að búa fyrirtækjunum það rekstrarumhverfi að þau geti blómstrað og náð góðum rekstrargrunni þannig að þau geti fjölgað starfsmönnum. Stóra áskorunin fram undan er að ná niður atvinnuleysi og þar gegna fyrirtækin í landinu lykilhlutverki, það er bara þannig, við þurfum að búa þeim þann rekstrargrundvöll sem þarf til að þau geti fjölgað störfum. Auk þess þurfum við að huga að því að umhverfi fyrir erlenda fjárfestingu hér á landi sé samkeppnishæft, vegna þess að erlend fjárfesting fjölgar einnig störfum. En þá þarf líka umhverfið hér að vera með þeim hætti að það sé aðlaðandi fyrir erlend fyrirtæki að koma hingað og hefja starfsemi. Ég bendi á Írland sem dæmi um land sem hefur staðið sig mjög vel í því að fá erlenda fjárfestingu. Hugverkageirinn er u.þ.b. 26% af þjóðartekjum Íra vegna þess að þeir hafa búið það umhverfi þannig að það sé aðlaðandi fyrir fyrirtæki, gagnaver og annað slíkt að koma til landsins.
Við þurfum að setja fram áætlun um það að búa fyrirtækjum hér og erlendum fjárfestum rekstrarumhverfi sem gerir það að verkum að hingað verði eftirsóknarvert að koma. Það er lykillinn í því að ná niður atvinnuleysi. Jú, það er verið að mæta atvinnuleysi með stuðningi en það eru útgjöld úr ríkissjóði sem eru ekki sjálfbær. Þess vegna er mjög mikilvægt að við náum niður atvinnuleysi og ég legg áherslu á að í málflutningi okkar Miðflokksmanna höfum við lagt til meiri lækkun á tryggingagjaldi til að bæta stöðu fyrirtækjanna í landinu.
Það er fleira sem ég vildi koma inn á í tengslum við þetta fjáraukalagafrumvarp og það eru hjúkrunarheimilin. Hér á loksins að setja u.þ.b. milljarð í rekstur hjúkrunarheimilanna en það mun ekki duga til. Hallinn á rekstrinum, ef tekið er tillit til framlaga sveitarfélaganna, og það er ekki lögbundið hlutverk þeirra, er um 1,5 milljarðar á ári. Ef horft er fram hjá sveitarfélögunum er hallinn kominn í 3 milljarða. Fulltrúar þessa geira komu á fund fjárlaganefndar og kynntu m.a. vandaða skýrslu sem fjallar um rekstrarvanda hjúkrunarheimilanna. Þar kom fram að hallinn sé jafnvel meiri, geti verið á bilinu 4–6 milljarðar þegar tekið er tillit til styttingar vinnuvikunnar, lífskjarasamninganna o.s.frv. Hér er því um verulegt vandamál að ræða og þetta framlag dugir hvergi nærri. Þó að það sé sannarlega mikilvægt, eins og komið hefur fram, og við styðjum það, þá verða menn að setja fram trúverðuga áætlun. Það er ekki hægt að henda þessu á undan sér. Þetta er bara bráðabirgðalausn hjá ríkisstjórninni. Hún veltir því yfir á næstu ríkisstjórn að leysa þennan vanda, sem er mjög brýnn.
Ég minni á að við í Miðflokknum fluttum breytingartillögu við fjárlögin um framlag upp á 800 millj. kr. til þess að mæta þessum rekstrarvanda. Sú tillaga var felld í þinginu af ríkisstjórnarflokkunum. Núna koma þeir loksins með tillögu til að reyna að leysa þennan vanda með einhverjum hætti til bráðabirgða. Það sýnir þversagnir í þessu af hálfu ríkisstjórnarinnar. Við höfum verið mjög meðvituð um það í Miðflokknum hvers konar vandi þetta er og höfum reynt að bregðast við honum en því miður hefur það mætt mjög takmörkuðum skilningi af hálfu ríkisvaldsins, það verður að segjast eins og er.
Síðan eru nokkrir liðir sem verið er að setja fjármuni í og koma fram í minnisblaði frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu sem barst okkur nefndarmönnum í fjárlaganefnd. Þar er m.a. fjallað um ráðstöfun á tekjuhlið og kemur fram að frestanir á skattgreiðslum kosti ríkissjóð um 6,5 milljarða kr. Síðan er úttekt á séreignarsparnaði. Það er mjög athyglisvert við séreignarsparnaðarleiðina, sem hefur að sjálfsögðu komið mörgum vel, að það má heldur ekki gera ráð fyrir því að það verði alltaf lausnin á einhverjum vanda sem steðjar að efnahagsmálum að heimila úttekt á séreignarsparnaði. Það er sparnaðarleið sem menn hafa hugsað sér til efri áranna og er séreign og er að mörgu leyti mjög skynsamleg leið vegna þess að hún felur í raun og veru í sér kauphækkun fyrir þann sem ákveður að fara þá leið, þ.e. atvinnurekandi greiðir 2% af heildarlaunum á móti launamanni. Ég legg áherslu á að menn geri sér líka grein fyrir því að þetta er sparnaðarform sem er mikilvægt að eiga og reyna að halda í eins og kostur er.
Hér eru einnig úrræði sem er verið að framlengja og bæta nýjum við eins og t.d. ferðagjöf. Setja á töluverða upphæð í ferðagjöf 2, um 1,4 milljarða kr. Það er töluvert há upphæð. En ef við skoðum aðeins árangurinn af ferðagjöfinni sem var sett á laggirnar fyrir ekki svo löngu síðan og margir Íslendingar nýttu sér síðastliðið sumar, sem var besta mál, þá sá ég athyglisverða frétt í blöðunum um að þetta hafi mest verið nýtt á einhverjum veitingastöðum, kjúklingaveitingastað og pitsuveitingastað. Jú, jú, þetta eru svo sem ágætisfyrirtæki en var þetta tilgangurinn? Var ekki tilgangurinn frekar að reyna að mæta ferðaþjónustunni sem hafði glímt við mestan rekstrarvanda og þá á landsbyggðinni sérstaklega?
Ég held að menn verði aðeins að skoða árangurinn af þessum aðgerðum. Það kom fram hjá hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni að það er mjög mikilvægt að við horfum til árangurs þeirra aðgerða sem verið er að leggja í og líka almennt þegar kemur að fjárveitingum ríkisins, að þær séu árangursmiðaðar, að fram fari mat á árangri fjárveitinga. Það er í anda laga um opinber fjármál. Það kom t.d. ekkert fram í fjármálaáætluninni um hvaða árangri aðgerðapakkar ríkisstjórnarinnar hafa verið að skila, sem er að mörgu leyti mjög sérstakt. Við sáum að í upphafi voru aðgerðirnar svolítið litaðar af ákveðinni örvæntingu af hálfu ríkisstjórnarinnar. Stöndug fyrirtæki voru að nýta sér þessar leiðir, hlutabótaleiðina og annað slíkt, sem þurftu ekkert á því að halda, sem sýnir að lagasetningin var ekki nógu vönduð af hálfu Alþingis hvað þetta varðar. Hlutabótaleiðin skilaði svo sem tilætluðum árangri en hins vegar er árangur aðgerðanna mjög ólíkur. Sumar stóðu undir væntingum en aðrar ekki og ég held að nú sé kominn sá tímapunktur að fara eigi fram ákveðið endurmat á aðgerðunum, það sé bara mjög nauðsynlegt, vegna þess að það er hluti af vandaðri fjárlagagerð af hálfu fjárveitingavaldsins að menn átti sig á því hver árangurinn er. Ég held að það sé mjög óljóst og ég held í raun og veru að þessi ríkisstjórn hafi ekki haft neina áætlun um það að mæla árangur, sem er að mörgu leyti mjög athyglisvert.
Ég sé að tíminn er að renna út og að lokum langar mig að koma aðeins inn á eitt atriði sem ég rakst á í þessu minnisblaði frá fjármálaráðuneytinu þar sem er fjallað um yfirlit yfir ráðstafanir vegna Covid-19, eins og segir þar á bls. 6. Þar kemur fram að lækkun bankaskattsins, þ.e. flýting hans, hafi haft áhrif á tekjuhlið ríkissjóðs sem nemur 5,7 milljörðum. Ríkissjóður varð af tekjum upp á 5,7 milljarða kr. vegna lækkunar bankaskattsins. Þegar halli ríkissjóðs er kominn í 328 milljarða kr. á þessu ári, sem er gríðarlegur halli, þá verða menn að horfa í alla tekjustofna sem þeir eiga. Þarna var tekjustofn sem var ákveðið að lækka og fella niður og honum var flýtt sem nemur 5,7 milljörðum. En hverju hefur það skilað? Ég spurði hæstv. fjármálaráðherra að þessu áðan í andsvari og það varð fátt um svör en meira um útúrsnúninga af hans hálfu. Hafa menn tekið eftir því að þjónustugjöld bankanna hafi lækkað? Ég hef ekki tekið eftir því. Hver er rekstrarafkoma bankanna? Ég sá að einn bankinn var að skila hagnaði upp á 12,5 milljarða kr. en á sama tíma sagði hann upp 20 starfsmönnum og gaf frá sér yfirlýsingar þess efnis að það ætti að fara að greiða eigendum heilmikinn arð. Það er nauðsynlegt að fá alveg á hreint hvaða árangri þetta skilaði, þessi aðgerð sem var ákveðið að flýta og kostar ríkissjóð 5,7 milljarða.
Það er ýmislegt sem þarf að fara yfir í öllu þessu ferli en í heildina eru náttúrlega í þessum fjáraukalagapakka (Forseti hringir.) nauðsynlegar aðgerðir. En það má ekki gleyma því að ríkisstjórnin ætlaði ekki að fara þessa leið. (Forseti hringir.) Hún ætlaði að taka fjárveitingar úr öðrum verkefnum til að hefja ný verkefni og það er ekki gott vinnulag við fjárveitingar. (Forseti hringir.) En við í Miðflokknum styðjum margar af tillögunum í þessu fjáraukalagafrumvarpi sem eru ágætar, (Forseti hringir.) sérstaklega hvað varðar atvinnumál.
(Forseti (BN): Forseti vill biðja hv. þingmenn að virða tímamörkin.)