fjáraukalög 2021.
Herra forseti. Þetta fjáraukalagafrumvarp kemur ansi seint fram, leyfi ég mér að segja. Enn er þó tími til að bæta úr og laga áherslur meiri hlutans hér í þinginu því að einhverra hluta vegna virðist stjórnarmeirihlutinn ekki átta sig á því hverjir það eru sem bera þyngstu byrðarnar í þessum heimsfaraldri. Margoft hefur verið bent á að efnahagslægðin og vandinn komi misjafnlega niður á okkur í þessum faraldri. Sumir hafa sagt að 10% séu í vanda en 90% í góðum málum og aðrir græði jafnvel á stöðunni og hafi fundið sér leið til þess að nýta sér hana sér til framdráttar. En það er fólkið sem misst hefur vinnuna sem hefur orðið fyrir mesta tekjufallinu.
Hv. stjórnarþingmenn og hæstv. ríkisstjórn hefur stigið skref. Eitt af því sem ríkisstjórnin gerði til þess að reyna að bæta stöðuna var að lengja tekjutengda tímabilið. Tekjutengda tímabilið er samkvæmt lögunum þrír mánuðir en var lengt í sex mánuði. Það þýðir að fólk fær hluta af tekjum sínum en aldrei þó meira en 456.000 kr. á mánuði. En hverjir voru það, forseti, sem fengu síðan þessar trakteringar frá hæstv. ríkisstjórn? Það voru þeir sem misstu vinnuna í mars 2020, þeir sem misstu vinnuna þegar veiran var komin inn í íslenskt samfélag og farin að skapa usla. Þau 10.000 sem voru atvinnulaus í febrúar fengu hins vegar ekki þessar trakteringar, þau máttu bíða. Það finnst mér svo ósanngjarnt og ég er ekki enn búin að sætta mig við það, forseti, að þeir sem höfðu verið lengst atvinnulausir, sem áttu í mestum vanda þegar enga vinnu var að fá vegna heimsfaraldurs, fengu ekki sérstaka aðstoð frá ríkisstjórninni heldur hinir sem voru búnir að vera skemur atvinnulausir.
Nú er það svo að atvinnuleysið er á niðurleið sem betur fer, en það gerist hægt. Samkvæmt síðustu tölum frá Vinnumálastofnun eru um 20.000 manns atvinnulausir á Íslandi. Þeir sem hafa verið atvinnulausir lengur en 12 mánuði eru rétt tæplega 6.500. Það er litið alvarlegum augum ef fólk er atvinnulaust lengur en 12 mánuði því að þá eru slæmar aukaverkanir af langtímaatvinnuleysi farnar að bíta verulega. En sambærilegar tölur við þetta eru að þeir sem höfðu verið atvinnulausir í meira en 12 mánuði í október síðastliðnum voru 3.614. Núna eru þeir orðnir tæplega 6.500. Í október 2019 voru þeir 1.466.
Það er klárt mál hverjir bera byrðarnar í þessum heimsfaraldri en ríkisstjórnin hefur ekki viljað mæta þeim með því að lengja atvinnuleysisbótatímabilið. Við í Samfylkingunni höfum lagt fram tillögu um að það yrði lengt um ár. Hún var felld. Við lögðum til sex mánuði. Það hefur líka verið fellt. En við tökum enn undir kröfur ASÍ sem talar um að atvinnuleysisbæturnar þurfi að hækka upp í 95% af lágmarkstekjutryggingunni og að atvinnuleysisbótatímabilið þurfi að lengja a.m.k. um sex mánuði. Það er svo sorglegt, forseti, að á hverjum mánuði núna detta tugir manna út af atvinnuleysisskránni, hafa ekki fengið vinnu í heimsfaraldrinum, enda enga vinnu að fá, og þurfa þá að leita á náðir sveitarfélaganna eftir félagslegri aðstoð sem er í öllum tilfellum mun lægri en atvinnuleysisbæturnar. Og ég veit að á því svæði þar sem ég bý, þar sem fjórði hver maður gengur atvinnulaus, er félagsleg aðstoð um helmingi lægri en atvinnuleysisbæturnar. Enda segja hjálparstofnanir okkur að aðsóknin í matargjafir hafi aukist, og eðlilega. Það sem ríkisstjórnin er að gera með því að taka ekki utan um þetta fólk við slíkar aðstæður er að beina því lóðbeint í sárafátækt og það er skammarlegt fyrir ríkt samfélag eins og við erum að haga sér með þeim hætti.
Hæstv. ríkisstjórn hefur viðurkennt efnahagsvanda fyrirtækja, og það er fínt, og mætt þeim vanda þannig að einhver þeirra geti haldið áfram, sem betur fer, og verið í startholunum þegar ferðamenn fara að koma til landsins. En hún hefur ekki sama skilning á efnahagsvanda heimilanna þó að allir viti sem vilja að langtímaatvinnuleysi er fólki hættulegt og ber mikinn kostnað í för með sér inn í framtíðina. Langstærstu hóparnir sem eru atvinnulausir núna af þessum 20.000 manns eru konur, ungt fólk og innflytjendur, enda eru það þjónustustörf sem hafa fallið niður í þessum heimsfaraldri. Mér finnst mikilvægt, forseti, að þetta fólk, sem hefur þurft að bera þessar byrðar fyrir okkur hin, fái skaðabætur. Við eigum að greiða þeim skaðabætur sem hafa verið að taka á sig þyngstu byrðarnar þannig að þeir komist fljótt af stað að nýju, geti spyrnt sér í þegar einhverja vinnu verður að fá.
Þetta er eitt, forseti. Hitt sem við getum ekki lokað augunum fyrir er að biðlistar í heilbrigðiskerfinu eru að lengjast. Nú er það svo samkvæmt minnisblaði frá Landspítalanum frá því í febrúar síðastliðnum að 3.625 einstaklingar bíða eftir skurðaðgerðum á Landspítalanum. Lengstu biðlistarnir eru eftir augnaðgerðum og liðskiptum á mjöðm. Þar bíða 392 einstaklingar. Eftir liðskiptum á hné bíða 827 einstaklingar og eftir brennsluaðgerð á hjarta 301 einstaklingur. Við verðum að bregðast við því. Þessir biðlistar hafa lengst af ýmsum ástæðum, það er ekki allt út af Covid en það skiptir ekki máli af hverju biðlistarnir hafa lengst. Það þarf að taka á þeim málum og mér finnst að við eigum að gera það í þessum fjáraukalögum, setja af stað átak, því að það er ekki bara í skurðaðgerðir þar sem biðlistar eru að lengjast, það er líka bið eftir geðheilbrigðisþjónustu á Landspítalanum. Þar bíða núna 1.095 einstaklingar og það sem er geysilega alvarlegt er að 131 barn bíður eftir þjónustu á barna- og unglingageðdeild Landspítalans. Við verðum að bregðast við því og þess vegna mun ég og vonandi nefndin öll flytja breytingartillögur við þetta frumvarp í þá veru að því megi mæta.
Annað mál sem mikið hefur verið rætt undanfarið er rekstrarvandi hjúkrunarheimila. Uppi hefur verið ákall til stjórnvalda um að setja aukið fjármagn í sjúkratryggingar til þess að mæta þeim vanda. Þó að fólkið sem rekur hjúkrunarheimilin sé allt af vilja gert þá mun fjárskortur alltaf koma niður á þjónustu við eldra fólk sem er á hjúkrunarheimilunum þannig að það er brýnt að mæta þeim vanda. Sveitarfélög þurftu að gefa frá sér reksturinn af því að þau réðu ekki við hann lengur og einkaaðilar tóku að sér a.m.k. þrjú hjúkrunarheimili um landið. Þegar það er komið í gagnið þá er hæstv. ríkisstjórn tilbúin til að leggja til peninga og leggur til milljarð með þessu fjáraukalagafrumvarpi, þó að í Gylfaskýrslunni svokölluðu sé talað um að enn hærri upphæð vanti inn í þá starfsemi.
Ég hef, forseti, fullan skilning á því að afla þurfi góðra upplýsinga um rekstur hjúkrunarheimila. Þegar einkaaðilar halda utan um reksturinn þá fáum við hér, fjárveitingavaldið, ekki eins skýrar upplýsingar um það í hvað hver króna fer innan heimilanna og auðvitað þurfum við að vita það til að vera sannfærð um að skattfénu sem ætlað er í rekstur hjúkrunarheimila sé vel varið. Mér finnst líka mikilvægt, sama hvaða samninga verið er að gera í velferðarkerfinu eða annars staðar í kerfinu, að ríkið skilgreini þarfirnar og semji síðan við aðila um hvernig hægt sé að uppfylla þær, en ekki öfugt. Það á auðvitað ekki að vera þannig að einkaaðilarnir komi með útskýringar á því hvað það sé sem ríkið þurfi á að halda og síðan borgi ríkið fyrir þær óskir. Það þarf að fara vel í saumana á þessum málum. Ég held þó, forseti, að við höfum nægar upplýsingar til að vita að þarna er mikill vandi á ferðum og við verðum að taka á þeim vanda. Það er ekki hægt að bíða eftir því að nýir samningar komi um áramótin. Allt þetta ár er eftir. Með þessu fjáraukalagafrumvarpi er settur milljarður í þetta og við verðum auðvitað að fara vandlega yfir það í fjárlaganefndinni hvort það sé nógu há upphæð, hvernig hún var ákveðin og hvað það sé í rauninni sem við þurfum að gera til að mæta þessari stöðu.
Að lokum, forseti, vil ég tala um vaxtarsvæðin þar sem mesta fjölgunin hefur orðið á fólki undanfarin ár. Ég þekki best til í mínu kjördæmi þar sem mikil fjölgun hefur orðið á Suðurnesjum, langt umfram það sem er að gerast á landinu öllu, og sama er að segja um Stór-Árborgarsvæðið sem við getum kallað, sem Heilbrigðisstofnun Suðurlands sinnir. Þar hefur orðið mjög mikil fjölgun en fjármunirnir sem ætlaðir eru til heilbrigðisþjónustu fyrir íbúa, sérstaklega til heilsugæslunnar, fylgja ekki. Þeir hafa ekki vaxið með fjölda íbúa sem þýðir bara að stofnanirnar, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og Heilbrigðisstofnun Suðurlands, geta ekki sinnt öllum íbúunum. Og hvað gera íbúarnir þá? Þeir leita sér þjónustu hjá heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu sem fær borgað eftir höfðatölu og ríkið borgar með þeim þar. Þetta fjármögnunarprógramm er verið að taka í gagnið úti um land og vonandi mun það skila einhverju. En það er ekki til rými á þessum vaxtarsvæðum til að taka á móti sjúklingum, þeim sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda. Það verður því að gæta sérstaklega að því að íbúar á þessum vaxtarsvæðum fái þá þjónustu sem þeim ber og er lögbundin.