151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[16:47]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hjó eftir einu í nefndaráliti hv. þingmanns sem mig langaði að spyrja út í. Veit ég að þar er að baki ansi löng umræða um þróun vinnumarkaðar og sér í lagi launaþróunar. Í nefndarálitinu kemur fram tilvísun í fjármálaáætlun eða greinargerð hennar um að mikilvægt sé að aðilar vinnumarkaðarins sammælist um nýtt og skilvirkara kjarasamningslíkan og er það ályktun hv. þingmanns og nefndarálitsins að þetta rósamál hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra og ríkisstjórnarinnar beri að skilja þannig að það þurfi að finna leiðir til að koma í veg fyrir hækkanir lágra launa. Þetta er náttúrlega ekki ný umræða í sambandi við það hvernig launahækkanir geta samkvæmt kenningunni aukið verðbólgu og þar með gert launahækkanirnar að engu. Vandinn er vitaskuld sá að þegar það eru hækkanir á launum mjög margra einstaklinga í einu hefur það væntanlega meiri áhrif gagnvart verðlagi heldur en ef fáir einstaklingar eyða einfaldlega hlutfallslega minna á mann af þeirri hækkun sem þeir fá. Það hefur ekki sömu áhrif.

Ég er vitaskuld ekki að lýsa þessu eins og sá raunveruleiki sem talað er um sé sanngjarn, því að það er hann ekki. En ég hef svolítið velt fyrir mér í gegnum tíðina hvað sé til ráða þegar kemur að því að hækka laun, eitthvað sem ég tek undir að við verðum að geta gert án þess að kalla vandamálið verðbólgu og hætta þess vegna við. Er ekkert sem við getum gert til þess að endurskoða þetta vinnumarkaðsmódel sem við vinnum með í dag án þess að draga úr því að aðilar á vinnumarkaðnum geti fengið launahækkanir yfir höfuð?

Mér hefur fundist þessi umræða einkennast mjög mikið af vinstri á móti hægri og vera lítið um það hvernig hægt sé að eiga við vandamálið öðruvísi en að annaðhvort kalla yfir sig fullt af verðbólgu eða að láglaunafólk geti ekki hækkað í launum. Hvort tveggja eru vandamál sem ég tel raunveruleg. (Forseti hringir.) Þess vegna velti ég fyrir mér hvort það sé virkilega þannig að það séu engar lausnir mögulegar þar sem við getum losnað við bæði vandamálin á sama tíma.