151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[16:50]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna sem beindist að nefndaráliti mínu vegna fjármálaáætlunar sem verið var að samþykkja hér fyrr í dag, en allt tvinnast þetta saman. Og já, mér fannst svolítið sláandi þegar ég las fjármálaáætlunina og textann með henni að þar var mikið talað um kerfislægan vanda, að það væri kerfislægur vandi á Íslandi sem yrði til þess að við myndum þurfa að glíma við langtímaatvinnuleysi framvegis ef við tækjum ekki á honum. Þessi kerfislægi vandi er sem sagt að launin hér séu of há. Auðvitað getum við leyst þennan vanda með því að ýta undir að það verði meiri verðmætasköpun í landinu. Þá eigum við ekki að vera að ýta undir atvinnugreinar þar sem lítil framleiðni er og mjög lág laun heldur reyna að ýta undir þær atvinnugreinar sem geta skilað meiru til samfélagsins. Í þessu nefndaráliti tala ég reyndar um það sem þarf að gerast. Við erum með ferðaþjónustuna og við erum með sjávarútveginn. Báðar þessar atvinnugreinar eru sannarlega mikilvægar en þær lifa á auðlindinni náttúru Íslands, sem er takmörkuð. Við verðum því að setjast niður með verkalýðsfélögum og atvinnurekendum og finna út úr því, koma okkur saman um hvernig við ætlum að efla atvinnulífið hér, auka verðmætasköpun, nota hugvitið meira o.s.frv. (Forseti hringir.) Við þurfum atvinnustefnu, við þurfum menntastefnu og við þurfum skattstefnu (Forseti hringir.) sem hugsar um þau mál út frá þessu sjónarhorni.