151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[16:52]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Rétt er það, ég leyfði mér að setja þessi mál í samhengi. En ástæðan fyrir því að ég vildi spyrja út í þetta er að ég hef sjálfur allnokkrar áhyggjur af því hvað gerist þegar, leyfi ég mér að segja, hagkerfið fer að rétta úr kútnum eftir að þessum faraldri linnir. Ég hef sjálfur frekar mikla trú á að ferðaþjónustan muni taka mjög stóran kipp. Ég hygg að ferðamenn séu orðnir langþreyttir á því að vera á sama staðnum og auðvitað eykur þessi hvalreki, eldgosið, sem við sjáum á leiðinni frá flugvellinum til Reykjavíkur, áhuga á Íslandi og áhugann á því að koma hingað, ef miðað er við reynsluna út frá nýlegri sögu Eyjafjallajökulsgosa. En ég hygg einnig að það muni fylgja þessari jákvæðu þróun krafa um launahækkanir hjá ansi stórum hópi af fólki sem mun óhjákvæmilega leiða út í verðlag. Ég hef áhyggjur af því, en sömuleiðis samhenginu við þróun gengisins og íslensku krónuna og öllu því havaríi. Í stuttu máli er mér ekki ljóst hvernig við eigum að geta fetað okkur áfram á næstu örfáu árum með hliðsjón af þessum fordæmalausu aðstæðum, í þeim skrýtna veruleika sem við stöndum frammi fyrir þegar við erum ekki enn þá komin á þann stað að geta einhvern veginn séð fyrir okkur vinnumarkaðsmódel sem bæði heimilar launahækkanir hjá láglaunahópum, sem eru jafnvel mjög stórir, en kemur sömuleiðis í veg fyrir að verðbólguþrýstingur myndist við aukna neyslu.

Ég gæti ábyggilega fabúlerað hér um eitt og annað í því samhengi af ákveðnu ábyrgðarleysi. En ástæðan fyrir því að ég nefndi þetta var að ég rakst á þetta í nefndaráliti hins málsins sem hv. þingmaður nefndi áðan. Ég velti fyrir mér (Forseti hringir.) hvernig við getum siglt sem best inn í næsta ár eða næstu tvö þannig að við sjáum hlutina eins skýrt og við mögulega getum í þeim efnum.