151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[16:55]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég er þeirrar skoðanir að það sé ekki réttlátt eða sanngjarnt með neinum hætti að heimta það að það sé fólksins sem fær lægstu launin á Íslandi að sjá til þess að verðbólga hér á landi sé lág og stöðugleiki haldist. Það er bara ekki sanngjarnt. Þess vegna verðum við auðvitað að fara að horfa í aðrar áttir. Hv. þingmaður nefndi hér gjaldmiðilinn og við í Samfylkingunni vitum auðvitað hver mesta og besta kjarabótin yrði, þ.e. að skipta um gjaldmiðil. Við munum alltaf taka dýfur og ris með krónunni. Hún getur staðið með kjörum almennings en hún getur líka farið gegn kjörum almennings. Við þekkjum þetta svo vel. Um leið og ferðamönnum fer að fjölga hér og þeir fara að skipta gjaldmiðlinum yfir í krónur mun krónan styrkjast og um leið verður ekki eins aðlaðandi fyrir ferðamenn að koma hingað því að landið verður dýrara. Þannig að þetta bítur allt í skottið á sér. Ef við ætlum í alvöru að horfa fram á framtíð þar sem er einhver stöðugleiki, þar sem vextir og verðlag æða ekki upp úr öllu valdi með reglulegu millibili, meðan útflutningsgreinarnar verða fyrir áfalli og græða síðan mikið á veikingu krónunnar en heimilisveskið bólgnar út og skreppur saman í öfugu hlutfalli, þá er lausnin að skipta um gjaldmiðil. Það ættum við auðvitað að vera búin að gera fyrir löngu og taka upp evru sem borin er uppi af 500 milljónum manna. (Forseti hringir.) Við erum með örmynt sem við hér, þjrúhundruð og eitthvað þúsund manns, höldum uppi. Það hlýtur hver maður að sjá að við getum ekki annað en farið í sveiflum upp og niður (Forseti hringir.) eftir krónunni og munum halda því áfram þar til við erum tilbúin að skipta henni út.