151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[16:57]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M):

Hæstv. forseti. Við erum að ræða hér fjáraukalög númer eitthvað hjá ríkisstjórninni sem er, eins og einn ræðumaður sagði áðan, sennilega síðasti Covid-pakkinn. En hvað veit ég? Það getur vel verið að það komi eitthvað í viðbót, þó er tíminn knappur.

Ég hef verið að hlusta og þetta er búið að vera athyglisvert en mig langar aðeins að koma inn á nokkur atriði sem eru ekki í þessum fjáraukalögum. Stærsti liðurinn er hjúkrunarheimilin, 1 milljarður, og er það vel og veitir ekki af, má segja. Það hefur verið mikill styr um rekstur hjúkrunarheimila, hvernig að þeim er staðið, og málaflokkurinn þyngist alltaf. Við erum að eldast og öll viljum við verða gömul, en við verðum líka að fá að njóta þess að verða gömul og hafa áhyggjulaust ævikvöld.

Það má margt segja um sýn ríkisstjórnarinnar og hæstv. heilbrigðisráðherra á þau mál, um hvernig best er að standa að þessum rekstri. Frá því að ég byrjaði í stjórnmálum, sem eru nú að verða átta ár, hefur ýmislegt breyst; áherslumunur í stefnu og sýn á hvernig þjónusta við eldri borgara eigi að vera. Fyrir nokkrum árum hétu þetta dvalarheimili. Síðan urðu þetta dvalar- og hjúkrunarheimili. Núna er hjúkrunarrýmishliðin á þessari þjónustu að verða æ stærri og það kostar náttúrlega mun meira, eðlilega. Svo er farið að horfa meira á það að þjónusta fólk heima hjá sér eins og hægt er meðan heilsan leyfir. Það er góðra gjalda vert að velta þessu öllu fyrir sér en þetta tekur ansi ríkum breytingum og t.d. núna á örfáum árum hefur stærð hjúkrunarrýma fyrir einstakling dregist saman. Hún tók svo miklum stökkbreytingum í fermetrafjölda og fór upp í um 35 m² á tímabili, sem þykir ansi vel í lagt. Síðan er spurning hvað ríkið á að vera mikið inni í þessum rekstri og hvað einkarekin heimili eða félagslega rekin heimili eiga að vera stór þáttur af þessu. Er það eitthvað sem pólitíkin þarf að setja stefnu um? Þar hefur sitt sýnst hverjum þetta kjörtímabil og alls ekki ríkt sátt um það. Það sést best á þeim félögum sem ekki eru ríkisrekin, hvað þau hafa þurft að berja á dyr ríkisins.

Sú upphæð sem þarna kemur fram er samt sem áður til að mæta þeim rekstrarvanda sem er í stöðunni núna og það er vel. En það er hægt að ræða vel og lengi um að taka einhverja stefnu sem myndi halda út eitthvert tímabil og hægt er að vinna að en ekki að vera sí og æ, að mér finnst, að hræra í því hvernig á að standa að þessum málum.

Síðan eru framhaldsskóla- og háskólastig með einhverja upphæð. Ég gat ekki séð þegar ég fletti frumvarpinu að þar væri neitt minnst á iðn- og tækninám. Hæstv. menntamálaráðherra hefur orðið tíðrætt um það á þessu kjörtímabili að gefið hafi verið vel inn í iðn- og tækninám, en það fara tvennar sögur af því hverju það hefur skilað. Nú á tímum atvinnuleysis og skorts á iðnaðarmönnum — það vantar iðnaðarmenn og tæknifólk víðast hvar — hefði maður viljað sjá spýtt þar í til að efla það nám. Það er mikil eftirspurn eftir þessari menntun og mér finnst það eiginlega dapurt eftir fjögur ár hjá þessari ríkisstjórn að það skuli ekki hafa skilað sér betur en raun ber vitni. Ég gerði mér miklar vonir um að hæstv. menntamálaráðherra myndi bæta þar úr því að henni varð mjög tíðrætt um það í upphafi kjörtímabilsins.

Svo er eitt sem ekki er þarna inni sem mig langar líka að taka fyrir, en það eru hafrannsóknir í sjávarútvegsmálum. Þar hefði verið hægt að taka stór skref, alla vega skref til að mæta þeim vanda sem er í sambandi við hafrannsóknir. Hafrannsóknir eru algerlega fjársveltar. Við erum einhvers staðar með í smíðum nýtt skip en það mun ekki gagnast okkur alveg strax. Breytingar í sjó, á hafstraumum og öðru slíku, eru eitthvað sem við höfum áhyggjur af, en samt sem áður getum við ekki sett puttann á það hvernig lífríkið hagar sér í raun. Þess vegna kallar það á mun meiri rannsóknir. Við getum líka sagt að fisktegundir sem við erum að veiða úr séu vanrannsakaðar. Við sjáum það t.d. í loðnunni að hún er farin að hegða sér á margan hátt öðruvísi en hún hefur gert í gegnum áratugina, hún hefur verið veidd hér síðan upp úr 1960. Síðustu ár hefur verið erfitt við hana að eiga því að hún virðist vera að færa sig meira norður fyrir land, eltandi hitaskil eða eitthvað slíkt í sjónum, og tvö síðustu ár, 2019 og 2020, var ekki veidd nein loðna af því að það fannst ekki nógu mikið magn. Reyndar var aflareglunni líka breytt, sem spilaði inn í. Síðan var farið í miklar rannsóknir og þar kom útgerðin myndarlega að málum sem varð til þess að gefinn var út loðnukvóti, reyndar ekki mikill en samt sem áður var hægt að taka það sem ráðlagt var að veiða á besta tíma þannig að aflaverðmætin urðu sem best úr loðnustofninum, það var sem sagt frysting og hrognataka. Það var einhvers staðar á bilinu 20–30 milljarðar og munar nú um minna í þjóðarbúið, ekki síst þegar ríkiskassinn er hálftómur.

Mig langar aðeins til að grípa niður í umsögn, sem var reyndar í fjármálaáætluninni, frá SFA, Samtökum fiskvinnslufyrirtækja í sjávarútvegi. Hér segir, með leyfi forseta:

„Í efnahagslegum niðursveiflum er enn þýðingarmeira að huga að grunnatvinnuvegum landsins. Slíkan grunnatvinnuveg má skýra með þeim hætti að aðrir atvinnuvegir eru háðir starfsemi hans en hann er á hinn bóginn ekki háður starfsemi þeirra í eins miklum mæli. Sjávarútvegur er einn af þessum grunnatvinnuvegum Íslands. Þess vegna telja samtökin alveg sérstaklega mikilvægt nú að efla og bæta verulega rannsóknir á lífríki sjávar og Hafrannsóknastofnun verði tryggt fullnægjandi fjármagn til nauðsynlegra rannsókna. Auk þess að vera forsenda sjálfbærrar nýtingar á fiskstofnum mynda hafrannsóknir nauðsynlegan grunn að upplýsingum og kynningu á sjávarútvegi á erlendum mörkuðum, sem tryggir samkeppnishæfni atvinnugreinarinnar. Rétt að benda á að 98% af íslensku sjávarfangi eru seld á alþjóðlegum markaði þar sem samkeppni er hörð. […] Þá er tiltekið að öflugar rannsóknir séu forsenda þess að hægt sé að veita stjórnvöldum bestu vísindalegu ráðgjöf um sjálfbæra nýtingu á fiskstofnum. Einnig séu öflugar rannsóknir nauðsynlegar til að fylgjast með þeim breytingum sem eiga sér stað á íslenskum hafsvæðum og krefjast grunnrannsókna og aukinnar vöktunar til dæmis breytingar á loðnustofninum.“

Þetta er eins og ég minntist á áðan, út af hugsanlegum breytingum í hafinu, eins og breytingum á loðnustofninum, eins og ég benti á.

„Að mati samtakanna þurfa stjórnvöld að gera hér bragarbót svo þessi markmið náist. Þess sér því miður ekki stað í frumvarpi til fjárlaga […]“ — sem sagt í fjármálaáætlun 2020–2026 sem er fjallað um í þessari umsögn.

Síðan segir hérna:

„Samtökin hafa ítrekað lýst þungum áhyggjum af fjárskorti til rannsókna á lífríki sjávar. Miðað við þarfir sjávarútvegsins má segja að starfsemi Hafrannsóknastofnunar sé komin í öngstræti. Hafa ber í huga að nýting sjávarauðlinda og tækifæri til sölu afurða á bestu útflutningsmörkuðum gera miklar kröfur til hafrannsókna og vísinda í heimi nútímans. Viðvarandi fjárskortur og mannekla hefur það sem af er þessari öld leitt til samfellds samdráttar í rannsóknum á sviði vistfræði og haffræði og skyldra greina, en vöktun á nytjastofnum hefur eðlilega haft forgang að fjármunum. Engu að síður er það svo, að verulega vantar einnig upp á að vöktun á nytjastofnum sé sinnt sem skyldi. Þá hafa rannsóknir á nýtingu fjölmargra minni fiskistofna ekki verið stundaðar með ásættanlegum hætti. Er þetta auðvitað bagalegt. Hér er nauðsynlegt og löngu tímabært að gerðar verði ráðstafanir með myndarlegri eflingu hafrannsókna.“

Svo heldur þetta áfram í þessari ágætu umsögn um þörf á því að spýta vel í í hafrannsóknum.

Við getum líka séð það í því þegar verið er að tala um fiskstofnana og ég hef fylgst með því í nokkuð mörg ár. Ég nefni ýsustofninn, sem fiskifræðingum og Hafró hefur einhverra hluta vegna gengið illa að kortleggja þannig að maður trúi því í raun og veru að þeir hafi rétt fyrir sér. Þeir eru náttúrlega að gera sitt besta en sveiflan í ráðgjöf við ýsuveiði er það mikil á milli ára að það er erfitt fyrir útgerðir að gera áætlanir í veiðinni á komandi ári fyrir kvótaáramótin, getum við sagt, því að þetta sveiflast jafnvel um 40–50%

Grásleppan var mikið rædd hérna á síðasta ári og rannsóknir á henni eru í hálfgerðu skötulíki, leyfi ég mér að segja, vegna þess að það er mjög erfitt að rannsaka hana. Hún er svolítið í þoku stóran hluta af ári. Menn vita ekki alveg hvar hún heldur sig. En þegar hún gengur upp að ströndum landsins gengur hún upp í sjó og þeir fá hana í flottroll og í troll og annað slíkt. Það er í þessum trollleiðöngrum Hafrannsóknastofnunar sem þeir taka stikkprufur af grásleppunni og þannig er ráðgjöfin fundin. Þetta var gert á sínum tíma til að máta þetta inn í núverandi módel fiskveiðistjórnar og sýnist sitt hverjum um það.

Síðan hefur orðið hrun í humri. Þar vantar fjármagn til að rannsaka hann enn betur og svona væri hægt að telja áfram. Bættar rannsóknir og sá peningur sem er settur í þær mun skila sér í betri afkomu síðar meir. Það er alveg ljóst hið margkveðna að það kostar pening að búa til pening. Það á við í þessu efni eins og öðru.