fjáraukalög 2021.
Virðulegi forseti. Ég verð að byrja á því að taka undir með hv. þingmanni um mikilvægi þess að rannsóknir séu fjármagnaðar nægilega vel þar sem þær geta jú varpað skýrara ljósi á hvað við getum veitt mikið af hverjum stofni og mögulega hvernig, ég þekki það ekki. Ég verð að viðurkenna að ég er tiltölulega fáfróður um nákvæm atriði í því. En þess vegna langar mig að spyrja hv. þingmann, því að ég hlýddi á ræðu hans um daginn þar sem hann benti á að talið væri að ekki væri hægt að veiða lúðu vegna þess að það væri svo lítið af henni sem hægt væri að veiða: Leggur hv. þingmaður til að veitt sé leyfi til að landa henni svo hægt sé að skoða hvort hún sé að taka við sér og þá sé hægt að veiða hana? Mér þótti sú hugmynd í fljótu bragði ágæt. Ég get alla vega ekki ímyndað mér hvað ætti að mæla á móti því ef fólk er hvort sem er að henda henni í sjóinn, lifandi eða dauðri.
Ég velti því fyrir mér í ljósi þess sem hv. þingmaður fór yfir í ræðu sinni hversu stór hluti af því sem bæta má hjá Fiskistofu og þeim aðilum sem hafa áhuga á því að rannsaka sjóinn okkar og lífríkið í honum snúist annars vegar um að auka fjármagn til þess að rannsóknirnar séu mögulegar og hins vegar um það að breyta um stefnu eða reglur, sem þarf ekki að kosta mikinn pening í sjálfu sér, eins og ég ímynda mér að sé tilfellið með ágæta tillögu hv. þingmanns um lúðuveiðarnar. Ég spyr hv. þingmann, vegna þess að hann kemur úr sjávarútveginum og ekki ég og ég hef áhuga á að fræðast meira um það hvar jafnvægið liggur á milli þessa. Það er auðvitað þannig að þegar ríkir hagsmunir eru að baki þá sýnist hverjum sitt um réttmæti rannsókna. (Forseti hringir.) En tíma mínum er lokið svo ég verð að koma að þessu í seinna andsvari.