fjáraukalög 2021.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir. Maður hefur heyrt þetta í gegnum árin, þetta var gott dæmi með fyrrverandi útvarpsstjóra, að hann hélt að sér væri skylt að biðja um meira fjármagn. Af því að við erum að tala um þetta einangraða tilfelli með blessaðu hvítlúðuna þá held ég að það væri stofninum ekki til nokkurs skaða að leyfa löndun á henni sem meðafla, ekki beina sókn, til að sjá viðgang stofnsins hvað það varðar. Það myndi auka aflaverðmæti og innkomu í ríkissjóð töluvert því að ég held að kílóið af lúðu gæti kostað yfir 1.000 kr., eða kostar það á markaði. Þetta hefur aukist alveg svakalega mikið síðustu tvö, þrjú, fjögur árin. Og hver veit hvað lifir af þessum fiski sem er sleppt aftur í sjóinn, ég tala nú ekki um ef hann kemur dauður um borð. Þannig að það er engin spurning í mínum huga.
En þetta er góð spurning með þörf á fjármagni og kannski þörf á áætlunum eða vilja til að standa betur að því og vera með ráðdeildarsemi varðandi fjárútlát hjá hverri stofnun fyrir sig, hjá þeim sem peninga fá, til að gera enn betur. Ég held að þarna sé líka smá vilji til verka, af því að við vorum að nefna þetta sérstaka atriði. Ég óttast ekki neitt í sambandi við það að löndun yrði leyfð á lúðu. Auk þess fer þarna 80% í VS-afla, sem er sjóður sem ríkið á, 80% af því sem leyft er að landa úr öðrum veiðarfærum, dreginn afli. (Forseti hringir.) Þannig að þetta mál sem ég er að undirbúa verður alveg örugglega 63:0 í atkvæðagreiðslu. (HHG: Alveg örugglega.)