151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[17:40]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Oddnýju G. Harðardóttur fyrir andsvarið. Ég skal reyna að svara. Þetta er vandi sem við stöndum frammi fyrir sem er ekki nýr af nálinni. Þetta er vandi sem við rekumst á með reglulegu millibili, á einhverra ára fresti, í mesta lagi áratugsfresti, þar sem við upplifum þessar sveiflur. Það gerist raunverulega alltaf eins. Það verður uppgangur í einhverri grein þannig að hún verður fyrirferðarmikil í samfélaginu og oft talað um ruðningsáhrif í því samhengi. Síðan gerist eitthvað. Það getur verið af náttúrulegum orsökum, markaðslegum orsökum, og það verður samdráttur, verður skellur í greininni. Þá kemur í ljós að við erum með allt of einhæft atvinnulíf. Þá förum við að tala um að þetta gangi ekki lengur og að nú þurfum við aldeilis að renna fleiri stoðum undir atvinnulífið. Síðan annaðhvort gleymum við því mjög fljótt eða við verðum svo glöð þegar við sjáum allt í einu nýja grein sem á að bjarga okkur. Við höfum verið með mörg dæmi um svona greinar þar sem við sjáum allt í einu ljósið og setjum allt okkar í hana og svo fer þetta enn einn hringinn.

Ferðaþjónustan er auðvitað mjög fyrirferðarmikil í íslensku atvinnulífi eða var það öllu heldur. Ferðaþjónustan er algerlega góð og gild og ég vil ekki hnjóða í hana með neinum hætti, en það er ekki skynsamlegt fyrir þjóðina að treysta svona mikið á einstakar atvinnugreinar. Við verðum til lengri tíma, og núna til skamms tíma, (Forseti hringir.) að byggja undir aðrar atvinnugreinar. Þar finnst mér líka að okkur skorti (Forseti hringir.) dálítið mikið upp á kjarkinn til þess að hafa úthaldið af því að um leið (Forseti hringir.) og við byrjum að sjá til lands þá byrjum við að draga í land, sem er ekki skynsamlegt.