fjáraukalög 2021.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég er sammála því að renna þurfi fleiri stoðum undir atvinnulífið. Við erum með ferðaþjónustuna, við erum með sjávarútveginn, auðlindadrifnar atvinnugreinar sem skipta okkur mjög miklu máli, en við verðum að hafa sterka stoð við hliðina og nokkrar jafnvel.
Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hann taki ekki undir það með mér að stjórnvöld þurfi að koma að því máli með atvinnustefnu, með menntastefnu, með skattstefnu sem fjallar um þessi atriði og að verkalýðsfélögin og samtök atvinnurekenda þurfi að koma að þessu borði líka til að búa til umgjörð og að við sýnum sem þjóð að við ætlum að læra af mistökum fortíðar og ætlum að horfa framan í þessar aðstæður og segja: Nei, heyrðu, við ætlum ekki að lenda í þessu aftur. Við verðum að hafa fleiri stoðir undir atvinnulífið, undir hagvöxtinn og undir hagsældina. Stundum hafa þeir sem hafa starfað atvinnurekendamegin sagt: Nei, það versta sem við getum hugsað okkur er að stjórnvöld fari að garfa í einhverri atvinnustefnu. En ég er þeirrar skoðunar að við verðum að gera það og að við þurfum að taka, eins og ég segi, menntastefnuna og skattstefnuna með, sem og verkalýðsfélögin og atvinnurekendur, til að fá greiðan veg að breyttu og betra atvinnulífi.