151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[17:45]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Enn þakka ég hv. þm. Oddnýju G. Harðardóttur fyrir andsvarið. Ég held að þegar við tölum um fleiri stoðir sé það mikilvægasta í því að við getum búið til atvinnulíf eða öllu heldur að til verði atvinnulíf sem er fjölbreytt. Núna er gjarnan talað um fjórðu stoðina og þá tala menn um hugvitsgeirann. Í raun og veru er hann mjög margbreytilegur og það er mjög ólíklegt að þó að allt einu myndi ganga illa að selja tölvuleiki væru á sama tíma erfiðleikar við að selja hugbúnað sem tengist heilbrigðisþjónustu eða grænum lausnum o.s.frv. Ég held því að sú stoð, ef við megum kalla hana það, sé fjölbreytt. Aðalmarkmiðið með þessu, þau eru náttúrlega mörg, er einmitt að búa til jafnvægi til þess að ef af einhverjum orsökum verður einhvers konar áfall þá eigum við nóg annað upp á að hlaupa þannig að það verði þá bara létt dýfa eða þvottabretti sem við þurfum að fara yfir smátt og smátt en við höldum bílnum algjörlega í jafnvægi á veginum.

Varðandi hitt, hvernig við eigum að gera þetta, þá held ég að mikilvægast sé að við búum til almennar aðstæður sem leggja þennan grunn. Ég er ekki alveg þeirrar skoðunar að hið opinbera eigi að ákveða beinlínis hvar tækifærin eru. Ég vil nefna sem dæmi, og ég er ekki fyrstur til þess, Össur og CCP. Engu íslensku stjórnvaldi hefði dottið í hug að setja það inn í atvinnustefnu á sínum tíma (Forseti hringir.) að við ætluðum að verða nánast heimsveldi í stoðtækjaframleiðslu og mjög framarlega í leikjaframleiðslu. Ég held ekki.