fjáraukalög 2021.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta og efnisríka ræðu þar sem víða var komið við. Hún endaði á kunnuglegum slóðum fyrir okkur tvo. Við höfum stundum á þessum stað og raunar víðar átt orðastað og samleið í því sem varðar Evrópusambandið og hugsanlega upptöku evru sem við virðumst ekki færast mikið nær. Sá möguleiki að fara alla leið inn í Evrópusambandið og taka upp evru er stundum eins og það standi til að fara til Mars, það virðist vera svo fjarlægur og furðulegur möguleiki.
Hér áðan var vikið að því að sífellt sé verið að fjölga stoðum. Oft er talað um að hafa fleiri egg í körfunni en samt er eins og þessi egg vilji einhvern veginn alltaf á endanum brotna öll í sömu körfu og við förum yfirleitt út í það að tala um sjávarútveginn og hugsa um sjávarútveginn vegna þess að það er einhvern veginn eins og þegar upp er staðið þá sé sjávarútvegurinn það eina sem geti almennilega þrifist hér.
En ég hjó eftir því að hv. þingmaður vék undir lok ræðu sinnar að landbúnaði. Ég deili þeirri skoðun hans að það sé ómaksins vert fyrir íslenska bændur að íhuga vel hvort full aðild að Evrópusambandinu gæti hugsanlega gagnast þeim og gagnast íslenskum landbúnaði. (Forseti hringir.) Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hann taki undir að kannski sé hægt að taka upp slagorðið „Ísland í ESB – bændanna vegna“.