fjáraukalög 2021.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Andra Thorssyni kærlega fyrir þetta. Já, ESB bændanna vegna. Það hljómar nú bara nokkuð vel. Ég myndi kannski vilja hafa þetta á breiðari grunni og segja „aðild að ESB – allra vegna“. Hitt er gott en að öllu gríni slepptu þá er ég þeirrar skoðunar að það væri mjög skynsamlegt og gott fyrir okkur öll, bæði bændur og búalið og aðra, að setja þessa umræðu í gang aftur, endurræsa þessa umræðu og ekki byrja hana endilega þar sem hún hefur alltaf endað, einhvers staðar þar sem menn æpa nánast hver á annan, og reyna að átta sig á þessu. Ég skal viðurkenna að af skýrslunni sem ég vitnaði til er ég bara búinn að glugga í ágripið þannig að ég veit ekki hvað í henni stendur og ætla ekki að þykjast vita það. Þetta greip athygli mína þegar ég var að renna yfir þetta. Ef það er þannig að bændur í Evrópu fá miklu meira fyrir afurðir sínar og búa við stöðugra umhverfi myndi ég giska á að afkoma þeirra væri betri. Sjálfsagt er það misjafnt eftir Evrópulöndum, við vitum að landbúnaður er misjafn o.s.frv. en ég held að það væri mjög gagnlegt ef við gætum skoðað þetta.
Varðandi ferðina til Mars þá er ég alveg sammála því að það gengi seint að komast þangað ef enginn hefði nokkurn tímann lagt upp í þann leiðangur þó að hann gæti kannski verið erfiður og tæki tíma. Ég er búinn að velta þessum málum fyrir mér með ýmsum hætti allar götur frá því fyrir 1990 (Forseti hringir.) og þá hefur viðkvæðið alltaf verið hið sama: Núna er ekki rétti tíminn, þetta er engin lausn núna. (Forseti hringir.) Þess vegna er aldrei lagt af stað til Mars og þess vegna komast menn aldrei til Mars.