fjáraukalög 2021.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Já, Íslendingum þótti álíka fjarlægur möguleiki öldum saman að veiða síld, þeir mokuðu síldinni frá til að komast út á sjó og hún truflaði þá. Þeir vildu frekar fara út á sjó til að reyna hákarlaveiðar sem gáfu að vísu nokkuð vel af sér en voru ákaflega torsóttar og ákaflega harðsótt og mannskæð útgerð, meðan það hefði kannski verið öllu nær að einbeita sér að síldinni. Það þurfti Norðmenn til að sýna Íslendingum fram á að síldveiðar væru ábatasamar og svo væri síldin jafnvel æt sem Íslendingar höfðu fram að því ekki talið.
Fleiri egg í körfunni — við erum að tala hér um Evrópu og Evrópusambandið, þýðingu fullrar aðildar fyrir aðrar greinar — nú erum við búin að tala um þessar undirstöðugreinar svokölluðu, frumframleiðslugreinar, sem basla við að lifa í þessu landi og stunda rekstur. Ég er að hugsa um ýmiss konar þjónustustarfsemi, iðnað og líka um þær greinar sem við erum að reyna að koma á fót með því að starfrækja hér sjóði og reyna að þróa hér nýja tækni. Mig langar að biðja hv. þingmann að hugleiða með mér hvort þetta sé ekki spurning um líf og dauða fyrir allar þessar greinar.