151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[17:54]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Enn þakka ég hv. þm. Guðmundi Andra Thorssyni fyrir áhugaverða spurningu. Ég held að það sé kannski best að byrja svarið á því að segja: Við erum svo ljónheppin að við gerðum mjög víðtækan samning á sínum tíma við Evrópusambandið, ásamt félögum okkar sem þá voru í EFTA, sem fól í sér að við urðum aðilar að svokölluðum innri markaði Evrópusambandsins. Þar eru meginreglurnar mjög skýrar um frjálsan flutning á varningi, þjónustu, fólki og peningum og ég held að ekkert eitt hafi umbreytt íslensku samfélagi jafnmikið og það að við bárum gæfu til að verða aðilar að EES-samningnum. Það er viss grunnur sem við stöndum á.

Hitt er það að með fullri aðild gerast nokkrir hlutir. Í fyrsta lagi fáum við fulla aðild að allri stefnumótun, öllum þeim aðgerðum sem Evrópusambandið stendur sameiginlega að. Við erum að tala um nýja tækni, við getum t.d. nefnt græna tækni, sem mikil áhersla er lögð á í Evrópusambandinu. Við fáum aðgang að ýmsu slíku og það fylgir því að íslensk fyrirtæki eru þá innan um og inni í sams konar kerfi og önnur evrópsk fyrirtæki. (Forseti hringir.) Þau verða ekki bara skrítin fyrir að vera uppi á Íslandi heldur verða þau meginstraumsfyrirtæki (Forseti hringir.) og verður litið á þau þannig og fjárfestar þora að koma með peningana sína inn í þetta o.s.frv. (Forseti hringir.) Það held ég að skipti gríðarlega miklu máli í hinu stóra samhengi.