fjáraukalög 2021.
Virðulegi forseti. Eitt af því sem fylgir Covid, veiruskrattanum, er heilaþoka. Kannski má yfirfæra þá eiginlegu þoku yfir á allt þjóðlífið í einhverjum skilningi. Kannski má segja að legið hafi nokkurs konar þoka yfir þjóðmálaumræðunni hér meðan á kófinu hefur staðið og þá jafnframt og kannski ekki síst þoka yfir efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. Við erum svolítið búin að gleyma því hversu andlaus og stöðnuð sú stefna var. En í viðbrögðum ríkisstjórnarinnar í þessu ástandi hefur margt jákvætt verið gert sem við í Samfylkingunni höfum stutt og við höfum leitast við að greiða götu þessara aðgerða þegar kemur að úrræðum ríkisstjórnarinnar. En við teljum engu að síður að ekki sé nóg að gert. Hér í þessu máli glittir í — ja, það glittir ekki bara í það, málið byggist beinlínis á efnahagsstefnu Sjálfstæðisflokksins þar sem litið er á opinbera þjónustu og hið opinbera almennt og yfirleitt sem bákn. Það er þráfaldlega kallað bákn, og ekki bara bákn heldur fjandsamlegt bákn sem einhverjir aðrir standi fyrir en við sjálf. Litið er á sameign okkar allra sem bákn; skólarnir okkar eru bákn, spítalarnir eru bákn, hjúkrunarheimilin eru bákn, að ekki sé talað um skattrannsóknir og samkeppniseftirlit og Fiskistofu og aðra slíka starfsemi, sem þeir kalla eftirlitsiðnað samkvæmt hugmyndafræðinni um báknið. Hið opinbera er sem sagt bákn en ekki sameiginleg ákvörðun okkar allra um að hafa samvinnu um tiltekin verkefni sem þarf að leysa sameiginlega. Nema þetta er náttúrlega allt í nösunum á þeim meira og minna. Þeir passa rækilega upp á það að stjórna þessum stofnunum öllum sjálfir. Báknið er tákn.
Herra forseti. Það eru vonbrigði í þessu að ekki sé brugðist við biðlistum í heilbrigðiskerfinu. Samkvæmt minnisblaði Landspítalans til heilbrigðisráðuneytisins frá því í febrúar síðastliðnum hafa biðlistar eftir sérfræðiþjónustu og skurðaðgerðum lengst á milli áranna 2020 og 2021. Nú bíða 3.625 einstaklingar eftir skurðaðgerð. En auðvitað hefur kórónuveirufaraldurinn haft mismikil áhrif á biðtímann eftir tegundum skurðaðgerða. Augljóslega þarf að vinna hratt og vel á þessum biðlistum og til þess þarf fjármagn. Til þess þarf að áætla fjármagn. Við erum að tala um augnaðgerðir, við erum að tala um liðskiptaaðgerðir á mjöðmum, liðskiptaaðgerðir á hnjám og hjartaaðgerðir. Og svo erum við líka að tala um bið eftir geðheilbrigðisþjónustu. Þar bíða 1.095 manns eftir því að komast að. Loks bíður 131 barn þess að fá að komast að hjá BUGL.
Á bak við allar þessar tölur er fólk í neyð. Birtingarmyndir þeirrar neyðar eru ýmiss konar og ólíkar, en allt þetta fólk bíður þess í ofvæni að fá sjálfsagða og eðlilega og réttláta úrlausn sinna mála, að fá að komast í þá heilbrigðisþjónustu sem á að vera lágmarkskrafa til samfélagsins að það veiti. Biðlistar eru ákvarðanir. Biðlistar eru pólitík. Biðlistar eru notaðir af ráðamönnum til þess að skapa þrýsting á eitthvað annað, til að skapa þrýsting á að þjónustan verði færð þangað sem ekki er um biðlista að ræða. Þjónustan er sem sagt fjársvelt þegar hún er á hendi hins opinbera til að skapa þrýsting á að hún verði flutt til einkaaðila.
Annar vandi og náskyldur er rekstrarvandi hjúkrunarheimilanna. Það er líka spurning um pólitíska ákvörðun. Þetta fjársvelti gekk meira að segja svo langt að sveitarfélög gáfust upp, gáfu frá sér reksturinn og einkaaðilar tóku þá yfir. Og það var eins og við manninn mælt; ríkisstjórnin, sem lítur á sameiginlegar stofnanir okkar sem bákn, var þá til í tuskið að fjármagna. Það er ekki nógu vel búið að gömlu fólki hér á landi eins og staðan er núna og kvíðvænlegt að hugsa til þess hvernig þjónustu verður háttað þegar fram líða stundir vegna þess að nú eru mjög stórir árgangar að komast á elliár með tilheyrandi þörf fyrir þjónustu. Þetta er allt spurning um pólitík.
Kannanir, sem mig minnir að Píratar hafi látið gera, minnir mig að hafi sýnt með ótvíræðum hætti að landsmenn settu heilbrigðiskerfið langefst á lista yfir það svið sem þeir vildu mest fjárframlög í. Aðrar kannanir, sem gerðar hafa verið af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands og Rúnar Vilhjálmsson hefur haft með höndum um árabil — niðurstöður voru að koma nú á dögunum og voru kynntar — sýna líka að yfirgnæfandi meiri hluti landsmanna vill að heilbrigðiskerfið sé rekið af opinberum aðilum en ekki með gróðasjónarmið að leiðarljósi. Nánar tiltekið eru það 81,34% landsmanna sem vilja að hið opinbera, ríki og sveitarfélög, reki sjúkrahús. Það eru 1,6% sem vilja að fyrst og fremst einkaaðilar reki sjúkrahúsin. Tveir af hverjum þremur landsmönnum, 67,6%, vilja að hið opinbera reki heilsugæslustöðvar en 3,3% vilja að einkaaðilar sjái einir um þann rekstur. En það er partur af þessum 3,3% sem er við landsstjórnina, því miður, og rekur þá stefnu að svelta hinar opinberu stofnanir svo að starfsemin færist yfir til einkaaðila.
Tölurnar eru ekki alveg jafn afdráttarlausar en þó afdráttarlausar þegar kemur að hjúkrunarheimilum. Tæp 60% landsmanna telja að hið opinbera eigi að reka hjúkrunarheimilin, þ.e. 58,4%, en 3,3% aðspurðra telja að einkaaðilar eigi alfarið að sjá um þann rekstur. Partur af þessum 3,3% er hins vegar við landsstjórnina og er alltaf haldið við landsstjórnina vegna þess að fulltrúar þeirra flokka sem mæla fyrir þeim sjónarmiðum sem yfirgnæfandi meiri hluti landsmanna aðhyllist koma sér ekki saman um að vinna saman. Þegar kemur að blönduðum rekstri eru einungis 17,1% sem telja að einkaaðilar og hið opinbera eigi til jafns að reka sjúkrahús og tæplega 30%, 29,2%, telja að þessi tvö ólíku rekstrarform eigi að vera saman.
Virðulegi forseti. Atvinnuleysið er á niðurleið. Oft hefur verið talað um að í þessum faraldri hafi yfirgnæfandi meiri hluti fólks verið tiltölulega ósnortinn af efnahagslegum áhrifum en 10% hafi hins vegar verið verulega snortin af efnahagslegum áhrifum þessarar veiru og séu í verulegum vanda. Hvað sem öðru líður og þótt talað sé um að atvinnuleysistölur séu að lækka þá eru 20.000 manns án atvinnu. Þeir sem hafa verið atvinnulausir lengur en 12 mánuði eru samkvæmt tölum frá Vinnumálastofnun 6.500 manns. Þetta eru gríðarlega háar tölur og miklu hærri tölur en við eigum að venjast hér á landi. Og af því að við vorum að tala um evru áðan, ég og hv. þm. Jón Steindór Valdimarsson, þá má minna á að ein helstu rökin fyrir því að notast við krónu sem gjaldmiðil eru þau að hægt sé að nota gengi krónunnar til að hafa áhrif á atvinnustigið þannig að atvinnuleysi sé aldrei of mikið. Því er ekki að heilsa núna. Við erum að horfa upp á það að fólk er að lenda hér í sárafátækt. Við erum að horfa upp á matargjafir. Við erum að horfa upp á ungt fólk, konur, innflytjendur, fólk í viðkvæmri stöðu sem verður atvinnulaust og þarf á hjálp að halda, þarf á miklu meiri hjálp að halda en ríkisstjórnin virðist vera reiðubúin að veita.