151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[18:15]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir áhugaverða spurningu eins og jafnan. Aðdáun á ríkisrekstri hljómar ekki vel og ég held að ég gangist ekki við því að vera beinlínis aðdáandi ríkisrekstrar en ég hef ekki hugmyndafræðilega andúð á honum heldur. Ég lít svo á að ríkisrekstur sé nauðsynlegur og ég lít svo á að í grundvallaratriðum sé ríkið ekki „það“ heldur „við“, ríkið sé ákveðið samstarf í kringum ákveðin verkefni sem þarf að inna af hendi, sameiginleg verkefni, sameiginleg úrræði sem samfélagið í heild þarf að koma sér saman um hvernig verði best leyst af hendi og leysa af hendi. Ég lít svo á að fólk sem starfar við þessar stofnanir sé í þjónustustarfi og ég veit að það fólk sem starfar við opinberar stofnanir lítur líka svo á að það sé í þjónustuhlutverki. Ég held líka að þetta sé spurning um sambúð einkarekstrar og opinbers rekstrar. Ég held að einkareksturinn þurfi á því opinbera að halda. Einkareksturinn þarf á sterku heilbrigðiskerfi að halda. Hann þarf á sterku menntakerfi að halda, einfaldlega til þess að framleiða vinnuafl og öfugt, (Forseti hringir.) hið opinbera þarf sterk fyrirtæki til þess að bæði fjármagna og eins til að framleiða hugmyndir.