fjáraukalög 2021.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og skal bara taka því að hann sé ekki sérstakur aðdáandi ríkisrekstrar í þeim skilningi. Ég henti þessu bara fram til að lýsa því hvernig tilfinningaleg upplifun mín er af því að heyra þetta, eins og ég geri stundum. En auðvitað tek ég skýringu hv. þingmanns opnum örmum. Ég á samt enn í smá vandræðum með hugmyndina um að ríkið sé „við“. Ég skil að það væri óskandi að ríkið væri við, en þá fæ ég ekki betur séð en að algjör grundvallarforsenda þess sé þá að tvennt sé komið á einhvers konar lokastað. Annað er einstaklingsfrelsi og hitt er lýðræði, þ.e. að hinn almenni borgari hafi áhrif á ákvarðanir yfirvalda. Þau eru ekki næg að mínu mati í dag, við höfum einn bókstaf á fjögurra ára fresti til að segja allt sem okkur finnst um allt sem ríkið gerir. Mér finnst það allt of lítið, enda berst ég fyrir lýðræðisumbótum sem ég hygg að hv. þingmaður geri líka.
Hitt er hins vegar vafasamara að það er kannski auðvelt fyrir þau okkar sem eru í ákveðinni stöðu í samfélaginu að líta á ríkið sem „okkur“ vegna þess að við erum vön því að alla vega síðustu ár lífsins hafi ríkið nokkurn veginn þjónað hagsmunum okkar. Það er hins vegar frekar stór hópur í samfélaginu þar sem ríkið er einfaldlega ekki vinur einstaklingsins heldur þvert á móti aðili sem stendur í vegi fyrir honum, jafnvel áreitir hann. Ég ætla að nefna eitt einfalt dæmi og það er hvernig við beitum lögreglunni gegn vímuefnaneytendum. Þetta er bara eitt dæmi, en þau eru fleiri þar sem kerfið okkar í nafni okkar allra kúgar einstaklinga með einum eða öðrum hætti. Þá er ríkið ekki „við“, þá er ríkið „meiri hlutinn“. Það er annað fyrirbæri. Þess vegna finnst mér svo mikilvægt að hafa þessar tvær stoðir alveg á hreinu, annars vegar lýðræðislega aðkomu að þessu ríki, sem erum „við“, og hins vegar einstaklingsfrelsið sem við höfum til að vera ekki hluti af þessu ríki þegar við viljum ekki vera það.