fjáraukalög 2021.
Virðulegi forseti. Ég er ekki viss um að einstaklingsfrelsið eigi sér lokastað eða eigi yfirleitt að komast á einhvern lokastað. Ég held, eins og hv. þingmaður veit jafn vel og ég, að frelsi mitt takmarkist af frelsi þínu og öfugt. Við þurfum alltaf að komast að einhvers konar samkomulagi um það hvernig við ætlum að haga hlutunum og um leið og við þurfum að gangast undir eitthvert slíkt samkomulag þá er frelsi okkar skert og þannig á það líka að vera. Hið algera frelsi einstaklingsins er ekki mögulegt í mannlegu samfélagi og ekki heldur æskilegt vegna þess að frelsi getur aldrei náð til þess að sitja yfir hlut annars, kúga annan og þar fram eftir götunum.
Ég tek alveg undir það sem hv. þingmaður segir hins vegar um það hvernig t.d. Útlendingastofnun starfar og hvernig hún kemur fram við þá sem sú stofnun er stofnuð í kringum og mætti nú bara byrja að breyta nafninu í Innflytjendastofnun eða eitthvað enn annað vegna þess að bara í sjálfu nafninu kemur fram ákveðið viðhorf sem ekki er æskilegt hjá þjónustustofnun.
Varðandi lögregluna og það hvernig lögreglan kemur fram við þá sem hafa neytt einhverra tiltekinna efna (Forseti hringir.) sem bannað er að neyta þá er það náttúrlega í verkahring okkar hér að breyta lögunum.