fjáraukalög 2021.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Guðmundi Andra Thorssyni fyrir ágætisræðu. Mig langaði aðeins að drepa niður þar sem verið var að tala um heilbrigðismál og rekstrarform í heilbrigðisþjónustu. Ég hjó eftir því að hv. þingmaður orðaði það þannig að þeir sem störfuðu fyrir hið opinbera áttuðu sig á því að þeir væru í þjónustu almennings, að þjóna almenningi. Ef við höldum okkur aðeins við það og veltum fyrir okkur t.d. heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu, hér eru reknar 19 heilsugæslustöðvar, held ég. Birt var könnun í febrúar síðastliðnum þar sem kemur fram að þær heilsugæslustöðvar sem aðspurðir töldu sig bera mest traust til voru einkareknar og í hópi efstu fimm eða sex voru fjórar eða fimm einkareknar. Það finnst mér í fyrsta lagi gefa tilefni til þess að ætla að starfsfólkið þar telji sig vera í þjónustu almennings, þess almennings sem til þess leitar. Mér finnst mjög mikilvægt að það komi fram að það er ekkert samasemmerki á milli þess hvort menn eru opinberir starfsmenn eða starfsmenn í einkarekstri varðandi hvernig þjónustu þeir veita.
Í öðru lagi er íslenska heilbrigðiskerfið meira og minna rekið á kostnað hins opinbera, um það held ég að við séum langflest sammála. Hins vegar er það svo að u.þ.b. 30% af íslensku heilbrigðiskerfi eru í einkarekstri. (Forseti hringir.) Þar má nefna tannlækna, sálfræðinga og stofnun eins og SÁÁ og lengra má halda. (Forseti hringir.) Er það ekki grundvallaratriði að ríkið sjái til þess að þessi þjónusta sé veitt en ekki aðalatriðið hver rekur hana?