fjáraukalög 2021.
Herra forseti. Það er að sjálfsögðu réttmæt ábending hjá hv. þingmanni að það starfsfólk sem starfar á einkareknum heilbrigðisstofnunum lítur svo á að það sé í þjónustustarfi rétt eins og fólk sem starfar hjá opinberum stofnunum og leitast við að veita þá þjónustu eins vel og því er unnt. Það held ég að fari ekkert á milli mála og um það er enginn ágreiningur.
Ég held hins vegar að vandinn sem við er að etja hjá opinberum heilbrigðisstofnunum, og jafnvel líka sumum einkareknum, sé fyrst og fremst sá hversu mikið fé vantar inn í reksturinn, þar er einfaldlega peningaskortur. Í framhaldi af því er um að ræða mönnunarvanda og álag. Í tengslum við það er svo hið skelfilega ljóta orð, sem er kannski ljótasta orð íslenskrar tungu, fráflæðisvandi, sem lýsir sér í því að gamalt fólk er fast á spítölunum, kemst ekki inn á stofnun sem hentar þörfum þess þannig að starfsfólk er fast í því að veita því fólki þjónustu og býr við ómennskt álag á allt of lélegu kaupi.