fjáraukalög 2021.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég velti því fyrir mér hvort grundvallarvandi okkar sé ekki sá að við vitum ekki almennilega hvað hlutirnir kosta. Ég hef hlustað á athyglisvert viðtal við forstjóra Sjúkratrygginga Íslands í tengslum við störf sérgreinalækna. Stofnunin virtist ekki vita hvað hún væri að kaupa eða hvað væri sanngjarnt verð fyrir það sem væri verið að gera. Ég held því miður að sami vandi sé uppi í hinu opinbera heilbrigðiskerfi. Þar vitum við ekki almennilega hvað hlutirnir kosta. Ég held að það sé grundvallaratriði áður en menn komast mjög langt áfram í þessari umræðu að menn geri sér grein fyrir því hvað læknisverkin kosta, hvað þjónustan kostar, hvað þarf til. Ríkið kaupir þá þjónustu sem það vill kaupa jöfnum höndum af einkaaðilum í einkarekstri og hinu opinbera kerfi. En grundvallaratriði hlýtur að vera að þar sé jafn grunnur sem þessi rekstur allur stendur á því að auðvitað er rekstur opinberrar stofnunar eins og Landspítalans eins og hver annar rekstur og það er misvel rekið. Ég held að það sé grundvallaratriði að ríkið sé góður kaupandi að þjónustu, ríkið skilgreini hvað það vill kaupa, til hvers sé ætlast og síðan sé því fylgt eftir með gæðakröfum. Þá held ég að þessi umræða muni að sumu leyti hverfast eingöngu um það hvaða þjónustu eigi að veita og hvað hún eigi að kosta en ekki hver veiti hana.