151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[18:29]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf) (andsvar):

Forseti. Já, það er alveg áreiðanlega hárrétt hjá hv. þingmanni að kostnaðarvitund, ekki bara í heilbrigðiskerfinu og ekki bara hjá Sjúkratryggingum heldur bara Íslendingum almennt, mætti vera betri. Ég held að til séu margar sögur um að fé hafi nýst illa í heilbrigðiskerfinu. Við höfum mörg dæmi um aðgerðir sem hafa verið greiddar ótæpilega úr sjóðum almennings sem var kannski þegar upp var staðið ekki brýn þörf á. Stundum hefur verið notað annað ljótt og leiðinlegt orð um það, orðið oflækningar. Í kerfið virðast vera byggðir inn hvatar fyrir lækna til að grípa til aðgerða sem eru kannski ekki bráðnauðsynlegar og svo eiga þeir reikningar greiða leið.

Aðalatriðið held ég að sé að almenningur á Íslandi vill geta notið heilbrigðisþjónustu, öruggrar heilbrigðisþjónustu, og vill ekki þurfa að greiða fyrir þá heilbrigðisþjónustu of hátt verð, vill að það sé greitt úr sameiginlegum sjóðum landsmanna og að sú heilbrigðisþjónusta sé ekki veitt með gróðasjónarmið að leiðarljósi heldur liggi önnur sjónarmið þar að baki.