151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[18:47]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fróðlega ræðu þar sem víða var komið við. Mig langar til að heyra aðeins í hv. þingmanni um það sem ég átti orðastað við hv. þm. Jón Steindór Valdimarsson um áðan og snerist um opinberan rekstur í heilbrigðiskerfi og einkarekstur í heilbrigðiskerfi, gróðasjónarmið í heilbrigðiskerfi andspænis öðrum sjónarmiðum. Lítur hv. þingmaður svo á að það leynist hættur í einkarekstri í heilbrigðiskerfinu og það geti jafnvel leitt til þess að þjónustan versni og sjúklingar þurfi að greiða meira en ella fyrir þá þjónustu? Telur hann að það verði hættulegt ef heilbrigðisstofnanirnar eru reknar af fyrirtækjum þar sem eru hluthafar sem þurfa að fá arð greiddan? Ég er forvitinn að heyra viðhorf hv. þingmanns í þessari umræðu en verið er að þreyta þá kappræðu úti um allt samfélag.