fjáraukalög 2021.
Virðulegi forseti. Já, það er gott að vera á báðum áttum, það er heilbrigt að vera á þeim stað. Þá sér maður nefnilega til beggja átta frekar en að sjá bara í eina átt. En mig langar aðeins að halda áfram með þetta, af því að mér finnst þetta vera brýn umræða sem við eigum m.a. að taka hér í þessum ræðustól, og fá fram viðhorf hv. þingmanns til annarrar tegundar þjónustu sem hið opinbera veitir. Þá er ég að hugsa um löggæslu, lögreglu.
Hv. þingmaður rifjaði hér upp áðan hvernig sumir voru farnir að tala á árunum fyrir hrun. Ég man eftir ólíklegustu mönnum, miðað við umræðuna eins og hún er í dag, tala fyrir einkavæðingu lögreglunnar og tala fyrir einkavæðingu löggæslunnar og tala fyrir því að slíkt yrði einfaldlega boðið út og síðan tækju einhverjar sveitir, löggæslusveitir, að sér löggæslu á tilteknum stöðum, tilteknum litlum stöðum úti á landi. Það væri hægt að bjóða þetta út svolítið eins og það eru einhver heilbrigðisfyrirtæki sem taka að sér heilbrigðisþjónustu á þannig stöðum.
Mig langar aðeins að heyra í hv. þingmanni, hvað honum fyndist um að löggæslan yrði í höndum einkaaðila en greidd af hinu opinbera.