151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[18:54]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er freistandi að fara í mikla bölumræðu um vitfirruna sem einkenndi árin á Íslandi fyrir hrun. Þar á meðal var sú hugmynd, sem að mínu mati er fráleit, að einkavæða lögregluna. En ég ætla að nýta tækifærið og halda áfram þessum ágætu, heimspekilegu samskiptum. Við getum lært ýmislegt af því þegar aðrar þjóðir hafa prófað að annaðhvort einkavæða tiltekna þjónustu eða þar sem hún var aldrei ríkisrekin að neinu marki. Eitt skýrasta dæmi um þetta finnst mér vera þegar fangelsi eru einkarekin, fjármögnuð af skattfé en einkarekin. Það sem gerist þá, og þetta er mjög skýrt í Bandaríkjunum til að mynda og annars staðar þar sem fangelsi eru einkarekin, er að til verður hagsmunahópur sem hefur ákveðinna hagsmuna að gæta. Og hvaða hagsmuna? Jú, þeirra að fólk sé lokað inni, að sem flest sé bannað, að refsingarnar séu sem grimmilegastar og það séu sem mestar líkur á því að viðkomandi komi aftur. Þetta er algerlega á skjön við markmiðið sem við erum að reyna að ná fram með fangelsismálakerfi, þessi markmið eru akkúrat þveröfug.

Ég segi stundum um markaðshagkerfi og kapítalismann: Hann virkar, en við þurfum að átta okkur á því að hann virkar jafnvel þegar við viljum ekki að hann virki. Hann er eins og sportbíl sem kemst miklu hraðar en allir hinir bílarnir en maður vill ekkert endilega fara eins hratt og maður mögulega kemst því að það er veggur fyrir framan mann. Þá vill maður geta farið hægt.

Þetta er kannski slæm líking, það má vera. En ég óttast t.d. að ef lögreglan væri einkarekin en fjármögnuð með skattfé þá yrðu til þessir hagsmuni, hagsmunir fyrir því að litið væri á allt sem afbrot, að afskipti af borgaranum væru beinlínis arðvænleg. Ég sé þetta ekki í fljótu bragði með heilbrigðiskerfið en ég átta mig á því að það eru alveg mögulega sambærilegar spurningar þar, hvort það gætu myndast hagsmunahópar sem hefðu hag af því að Íslendingar almennt lifðu mjög óheilbrigðu lífi. Eins og ég segi þá sé ég það ekki í fljótu bragði en ég myndi vilja skoða þann punkt vel ef til þess kæmi að við færum að ákveða eitthvað endanlega í þeim efnum.