fjáraukalög 2021.
Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Helga Hrafni Gunnarssyni fyrir ágæta ræðu. Mig langar aðeins til að spjalla við hann um nýsköpunina og hvort við getum fundið verkefni sem við eigum beinlínis að hvetja fyrirtæki og einstaklinga til að hasla sér völl innan, eða svið hefði ég kannski frekar átt að kalla það. Ég held að það sé mjög góð pæling sem hv. þingmaður var með í kringum þetta. Fyrsta atriðið tel ég vera þannig að við þurfum að reyna að búa til hin almennu skilyrði þannig að atvinnulífið geti þrifist. Við þurfum að búa til hin almennu skilyrði til að fólk geti menntað sig og sótt sér tækifæri. Oft er það vissulega þannig að það eru búnar til alls konar áætlanir. Hv. þingmaður nefndi þarna stóra og merka áætlun á geimvísindasviðinu. Ég held að það komi einmitt alveg til greina að velta því fyrir sér að sækja inn á tiltekin svið. Mér dettur í hug í því samhengi hvernig veröldin hefur breyst á undrastuttum tíma með tilkomu allra þessara nýju samskipta sem ekki voru til fyrir örfáum árum, liggur mér við að segja, við erum allt í einu búin að uppgötva að heilinn er bara ótakmörkuð auðlind og íslenskur heili getur starfað og haslað sér völl hvar sem er í heiminum frá Íslandi.
Svo ég hafi einhverja spurning í þessu þá sér maður t.d. að nú er hér íslenskt fyrirtæki sem er að hasla sér völl í því að dæla niður kolefni eða koltvísýringi, Carbfix. Það blasir við að hér eiga Íslendingar alveg stórkostlegt tækifæri. Þetta er dæmi um að hér væri hægt að efla þann iðnað. (Forseti hringir.) Er hv. þingmaður ekki sammála mér um að við getum gripið svona með dálítið víðri trekt?