151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[18:59]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er eflaust ákveðin jafnvægislist fólgin í því að reyna að finna út úr því hvað það er sem ríkið ætti að standa að annars vegar og hvað ætti að verða til náttúrlega úti í hagkerfinu hins vegar. Við hljótum að þekkja hér á Alþingi og víðar í kerfinu að hinn opni hugur, forvitnisdrifkrafturinn, er ekki endilega upprunninn hjá Alþingi eða ríkisstofnunum og það er náttúrlega bara vegna eðlis þeirra stofnana. Á meðan er fólk einhvers staðar úti í einkageiranum í þeim aðstæðum kannski frekar að grípa hugmyndir sem krefjast persónulegrar áhættu og persónulegs eldmóðs og þess háttar.

Ég legg línurnar þannig að ég hugsa mér tvo geira. Annar er hugbúnaðargeirinn. Ég hygg nefnilega að forritarar almennt sækist ekkert voðalega mikið eftir ríkisafskiptum af sinni vinnu eða hugmyndasmíði, þeir vilja helst fá að vinna vinnuna sína í friði, rækta hugmyndir sínar, kannski fá góða hugverkavernd og eitthvað þess háttar en vilja ekki endilega að ríkið sé að fjármagna eitthvað eða stýra því hvert verkefnin fara. Það hygg ég að sé vegna þess að eðli hugbúnaðargerðar er einmitt þannig að maður getur sinnt henni sem einstaklingur og fullt af fólki gerir það.

Hins vegar komum við að einhverju eins og geimiðnaði þar sem sögulega hefur þurft ákveðinn stuðning vegna þess að verkefnin eru í eðli sínu stór. Þá getur einn einstaklingur tekið þátt, agnarsmáan þátt kannski, í risavöxnu verkefni. Þá getur þurft atbeina ríkisins til þess að við getum tekið þátt í verkefnum til að byrja með og um það t.d. fjallar aðild að Geimvísindastofnun Evrópu. Hún fjallar um að þótt við séum ekki beinlínis að fara að búa til geimskip og setja inn í það róbóta sem príla upp á fjöll á Mars þá getum við samt alveg gert einhvern hluta af þeim. En þá þurfum við að hafa aðgang að verkefninu. Þar held ég að ábyrgð ríkisins sé sú að tryggja aðgang einstaklinga og minni aðila, og Íslandi er minni aðili, að svo stóru verkefni.

Þetta er mælistikan sem ég hef svolítið hugsað þegar kemur að þessari spurningu. (Forseti hringir.) En að sjálfsögðu er þetta líka ákveðin jafnvægislist. Við þurfum að grípa tækifærin þegar þau eru augljós en á sama tíma að átta okkur á því að góðu tækifærin eru ekki endilega augljós.