151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[19:02]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Maður veltir ýmsu fyrir sér í þessu. Það er auðvitað dálítið erfitt að stýra mannsheilanum en það er kannski hægt að hjálpa honum með því að veita honum atlæti og næringu þannig að einstaklingnum sem hefur heilann í höfuðkúpu sinni líði vel og honum finnist það sem hann gerir metið að verðleikum og hann sé hvattur áfram. Ég held að það skipti miklu máli að samfélagið hafi velþóknun á því að menn fái hugmyndir og komi þeim í gagnið.

Mér finnst þetta mjög athyglisverð umræða um geimvísindin og ég skal alveg fyrstur viðurkenna að mér fannst þetta allt frekar fáránlegt þegar það var að byrja að koma til umræðu að Ísland ætti að reyna að vera þar með. Ég hugsaði einmitt á hinum stóra skala; hvort við værum að fara að skjóta upp eldflaugum til annarra hnatta og allt þetta. En hv. þingmaður lýsti því ágætlega hvernig það virkar. Þetta held ég að sé líka grundvallaratriði, að menn komist að, og það geta bæði verið einstaklingar og fyrirtæki, inn í hin stórhuga verkefni sem verið er að fást við víða um heim. Þetta opnaði það eiginlega fyrir mér að nú fékk ég kjörið tækifæri til þess að setja Evrópuvinkilinn inn í þessa umræðu því að akkúrat á þeim vettvangi eru gríðarlega mörg verkefni á mjög mörgum sviðum sem einmitt ganga út á það að örva og hvetja til framþróunar á tilteknum sviðum, eins og í geimvísindunum, og hversu mikilvægt það er fyrir okkur að við höldum öllum þessum dyrum opnum.

Þetta eru enn ein rökin í það safn að við þurfum ekki, með einhverjum sérstökum hætti (Forseti hringir.) jafnvel, að fara bónleið til að fá fyrir náð og miskunn að vera með. Þess vegna er þetta enn einn vinkillinn á það (Forseti hringir.) af hverju það skiptir svo miklu máli að við séum fullir þátttakendur og getum opnað allar þessar dyr.