151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[19:04]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil ekki byrja að hljóma eins og það eina sem ég hugsa um í þessu samhengi séu geimvísindi, mér þykir það bara svo áhugavert. En ég verð að nefna það að þegar við lögðum fram þingsályktunartillögu okkar um að sækja um aðild að Geimvísindastofnun Evrópu þá þurftum við á sínum tíma svolítið að sverja af okkur hugmyndir um að skjóta hér upp geimflaugum vegna þess að það var svo framandi hugmynd. En hún var ekki meira framandi en svo að við erum ekki einu sinni búin að sækja um enn þá, enda langtímaverkefni, en það var nýlega skotið upp tilraunaeldflaug á Íslandi og þær verða vonandi fleiri. Þannig að jafnvel það er ekkert það fjarstæðukennt, að við skjótum einhverju út í geim frá Íslandi.

Að því sögðu þá snýst þetta, eins og hv. þingmaður fór yfir, um aðgang að heiminum. Þetta snýst um að við getum tekið þátt á þeim sviðum þar sem við höfum burði. Við höfum þekkingu og við höfum metnað en við höfum ekki aðgang að verkefnunum sem eru risavaxin og krefjast þess að það sé annaðhvort risavaxið þjóðríki, eins og Bandaríkin, Kína, Sovétríkin eða Rússland eða eitthvað slíkt, eða samansafn af ríkjum sem taka sameiginlegt verkefni að sér og útdeila þeim til þeirra aðila, smárra sem stórra, sem þeim hentar. Þýskaland er að búa til eldflaugarnar og við getum búið til gervigreindina í krílið sem prílar upp á fjöll á Mars. Og við getum það. Við höfum sem sé í alvöruburði til þess í dag á Íslandi. Það er ekki einhver draumsýn. Það er tækifæri sem við höfum í dag. En við höfum ekki aðgang að þessum verkefnum og um það snýst sá pakki. En hann er auðvitað bara einn af mörgum. Það hefur líka einhvern tíma komið til tals að við ættum að vera hluti af CERN. Ég þekki það ekki sjálfur, ég hef ekki kannað það nógu vel til að vita hvort það sé mikið vit í því eins og er, en það má vel vera. Við erum hluti af Sameinuðu þjóðunum. Við erum hluti af EES. Það er vegna þess að við erum sjálfstætt ríki sem við getum tekið þátt í hlutum sem eru miklu stærri en Íslendingar hefðu getað hugsað sér 1920 eða hvaðeina að við gætum gert sem smáþjóð. Þannig að þetta snýst allt um að nýta tækifærin, (Forseti hringir.) opna á aðgang einkaaðila sem og opinberra aðila að mörkuðum til þess að við getum nýtt þau tækifæri sem stundum blasa við.