151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[19:22]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni ræðuna. Mig langar sérstaklega að nefna það sem hann vék að, að fjáraukalög eigi að taka á útgjöldum ríkissjóðs sem voru ófyrirséð þegar fjárlög voru afgreidd. Það er ekki svo langt síðan við afgreiddum fjárlög og þótt við lifum mikla óvissutíma er ýmislegt sem við þó vissum í desember á síðasta ári og sáum fyrir. Í þessu skjali eru nefnilega nokkrar hugmyndir sem mér finnast vera að ganga í endurnýjun lífdaga sinna, ég kannast við þær úr breytingartillögum sem felldar voru í þingsal í desember. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort honum finnist t.d. ekki vera nokkuð mikill svipur með vinnumarkaðsaðgerðum í þessu frumvarpi til fjáraukalaga, sem er stærsti hlutinn af þessu frumvarpi, Hefjum störf, styrkur til endurráðningar í fyrra starfshlutfall og það allt saman, með t.d. tillögum Samfylkingarinnar sem felldar voru hér í desember og sneru að því að fjölga störfum og veita fyrirtækjum ráðningarstyrk ef þau réðu fólk af atvinnuleysisskrá? Þá var líka mikið rætt í haust um nauðsyn þess að lengja tekjutengt tímabil atvinnuleysisbóta.

Mig langar að velta því upp með þingmanninum hvort við séum í alvöru að tala um, í þessu fjáraukalagafrumvarpi, ófyrirséð útgjöld eða bara útgjöld sem stjórnarflokkunum fór allt í einu að þykja óþægilegra að standa ekki straum af, því að fólk áttaði sig á því að það sem stjórnarliðar greiddu atkvæði gegn í desember væri kannski það sem samfélagið þyrfti einna helst á að halda.