151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[19:25]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni fyrir ágætt andsvar og vangaveltur um fyrirsjáanleika tilverunnar og hvað ætti að teljast giska fyrirséð. Við höfum lifað þessa einstöku tíma og það hefur oftar en einu sinni og oftar en tvisvar verið klifað á því að ekki hafi verið hægt að taka svona ákvarðanir nema á síðari stigum vegna hinnar miklu óvissu. En það er alveg rétt að það eru margir mánuðir, kannski næstum því ár, síðan við lögðum til ákveðin atriði sem hefði mátt styðjast við. En það er viðkvæmt atriði og skiptir máli hver á hugmyndirnar, hver á tillögurnar.

Þetta mikilvæga atriði, að eyða óvissu, getum við svo sem verið sammála um að er gríðarlegt atriði, en í meginatriðum eru nú stjórnvöld sennilega að innleiða þau ákvæði sem við bentum á og var ekki hlýtt á fyrir ekki svo mörgum mánuðum síðan. Einhverjir göfugt hugsandi kunna að segja: Það er sama hvaðan gott kemur. Ef þetta er í þágu okkar góðu landsmanna þá skiptir ekki máli hvort það kemur frá ríkisstjórn eða einstökum flokkum. En það er sérkennilegt að menn skuli ekki hafa náð betur og fyrr utan um ýmsa veigamikla þætti. (Forseti hringir.) Við erum auðvitað uggandi yfir þeim hópum sem standa lakast í samfélaginu.