fjáraukalög 2021.
Herra forseti. Ég þakka þingmanninum svarið. Það er ekki sama hvaðan gott kemur, sagði þingmaðurinn. Þá má ég til með að nefna að í grunnstefnu okkar Pírata er einmitt eitt af atriðunum sem við leggjum áherslu á að það er sama hvaðan góð hugmynd kemur; ef hún er góð í sjálfu sér þá styðjum við hana, bara á málefnalegum grunni. Því miður virðist það vera minnihlutaskoðun í þessum sal vegna þess að við sjáum þess allt of oft dæmi að góðar hugmyndir eru felldar hér í þingsal til þess eins að öðlast framhaldslíf sem hugmyndir stjórnarliða sem ekki gátu unnt stjórnarandstöðunni að fá þær samþykktar.
Eitt atriði langar mig líka að nefna vegna þess að ég veit að við hv. þingmaður erum miklir bandamenn í baráttunni fyrir mannsæmandi kjörum fyrir námsfólk. Það er nokkuð sem hefur aldeilis verið rætt oft hér síðasta árið í kjölfar þess að lög um Menntasjóð námsmanna voru samþykkt en ekki fylgt eftir með því að hækka grunnframfærslu. Og í ljósi þess að atvinnuástandið hefur sérstaklega slæm áhrif á stúdenta á Íslandi, kollegar þeirra erlendis reiða sig á vinnu með námi til framfærslu, hefur stúdentahreyfingin kallað eftir því að stúdentar hafi rétt til atvinnuleysisbóta í námsleyfi. Hér er bætt við sumarstörfum fyrir námsmenn, sem var alveg fyrirséð í desember að þyrfti, en ekki er snert á þessu atriði. Þeim hefði verið í lófa lagið að bæta inn þessari heimild sem hefði aukið framfærsluöryggi stúdenta í landinu. Ef ekki hefði þurft að ganga á þessa heimild þá hefði það bara verið frábært fyrir ríkið (Forseti hringir.) vegna þess að þá væri allt í himnalagi. Þyrftum við ekki að endurlífga þá hugmynd í þessu frumvarpi til fjáraukalaga?