151. löggjafarþing — 104. fundur,  1. júní 2021.

eignir Íslendinga á aflandssvæðum.

[14:00]
Horfa

Rósa Björk Brynjólfsdóttir (Sf):

Herra forseti. Skattsvik og peningaþvætti tengjast því miður órjúfanlegum böndum. Í nýlegri skýrslu fjármálaaðgerðahópsins FATF og áhættumati ríkislögreglustjóra kemur fram að skattalagabrot séu ein helstu frumbrot peningaþvættis. Eignir og tilfærsla fjármuna til aflandssvæða er stór og mikilvægur þáttur af þessu tvennu, skattalagabrotum og peningaþvætti. Það skiptir því ótrúlega miklu máli að hér sé nægt fjármagni veitt til að uppræta skattundanskot og að mannafli sé tryggður, en líka að stofnunum sem sinna því að uppræta skattundanskot og ákæra í þeim efnum sé tryggður vinnufriður, fjármagn og starfsumhverfi, en ekki að leggja niður embætti skattrannsóknarstjóra eins og ríkisstjórnin hefur gert.

Herra forseti. Það er svolítil lenska meðal ráðamanna hér á landi að hreykja sér af frumkvæði sínu þegar breyta á hlutum til betri vegar þegar kemur að atriðum eins og vernd uppljóstrara, að setja lög um gagnsæi um eigendur fyrirtækja og jafnvel þegar samþykktar eru aðgerðir til að sporna gegn skattsvikum eða skattundanskotum. Ráðamenn gleyma oft að nefna alþjóðasamstarf um skattsvik og skattundanskot. Alþjóðasamvinna hefur aukist undanfarin ár til að sporna gegn skattaskjólum og sömuleiðis öflun gagna þvert á landamæri til að upplýsa um raunverulega eigendur aflandsfélaga.

Í gegnum alþjóðasamstarf okkar höfum við innleitt reglugerðir sem snúast um þessa hluti og við höfum undirgengist alþjóðlega viðmiðanir, m.a. frá Evrópuráðinu, í skýrslum OECD og samþykktum frá norrænu ráðherranefndinni. Þetta alþjóðasamstarf er í raun og veru grunnatriði í því sem gert hefur verið hér á landi er varðar þessa þætti, eins og vernd uppljóstrara, gagnsæi um eigendur fyrirtækja, alþjóðasamstarf um skattsvik og skattundanskot og fleira. Þar hefur alþjóðasamstarfið haft mun meiri áhrif til að breyta þessum hlutum til hins betra heldur en frumkvæði íslenskra stjórnvalda. Það hefur frekar snúist um að draga úr skattrannsóknum eins og með því að leggja niður embætti skattrannsóknarstjóra, eins og við sáum hér fyrir jól. Hér hefur verið talað fyrir eflingu skattrannsókna og auknu sjálfstæði skattrannsóknarstjóra. Það er vel og það er nauðsynlegt í stóru málum eins og Panama-skjölunum og fjárfestingarleið Seðlabankans.