151. löggjafarþing — 104. fundur,  1. júní 2021.

eignir Íslendinga á aflandssvæðum.

[14:13]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Skaðinn sem skattsvik í aflandsfélögum valda samfélaginu er falinn skaði. Við sjáum ekki hvað hefði orðið um fjármunina ef þeir hefðu skilað sér í samfélagið. Því er erfitt að átta sig á umfanginu. Reynum þó að ímynda okkur hvað það hefði hjálpað mörgum örorkulífeyrisþegum varðandi lífeyrisgreiðslur í samræmi við lágmarkstekjutryggingu lífskjarasamninganna ef það fé hefði skilað sér þangað eða inn í heilbrigðiskerfið til að stytta biðlista barna og annarra sem þurfa á hjálp að halda. Þegar auðmenn svíkja undan skatti brjóta þeir gegn þeim sem þurfa mest á hjálp að halda í samfélaginu.

Bótasjóðir tryggingafélaga eru sjóðir þar sem er dælt inn fé og fólk sækir bætur í vegna slysa. Inn í þennan sjóð dæla tryggingafélögin ótakmörkuðu fé, en reyna síðan með öllum ráðum að borga sem minnst út. Afleiðingarnar eru þær, eins og fyrrverandi hv. þm. Pétur Blöndal heitinn sagði, að þarna myndast fé án hirðis. Munum við eftir afleiðingunum af því? Hvað skeði? Jú, bótasjóður Sjóvár hvarf, hann fór til Tortólu eða Cayman-eyja, hoppaði þaðan yfir til Kína og endaði í lúxusíbúð þar. Hoppaði síðan til baka og var sagt að hann hefði endað sem veð í sundlauginni á Álftanesi. Við erum með þessa bótasjóði enn þá óvarða þarna. Fjármálaeftirlitið, sem á að verja þá, er kirfilega lokað ofan í skúffu í Seðlabankanum og því ekkert gert þar. Það sem er undarlegast við þessa sjóði er að siðaðar þjóðir gera svona sjóði upp á fimm til tíu ára fresti en ekki við. Þarna safnast fé án hirðis og bíður eftir því að fara aftur á flakk til Cayman-eyja, Tortólu og í lúxusíbúðir í Kína.