eignir Íslendinga á aflandssvæðum.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra og hv. þingmönnum fyrir þátttökuna í þessari umræðu. Þó að öllum spurningum verði ekki svarað í stuttri umræðu er augljóst að spurningum og athugasemdum sem höfundar skýrslunnar um eignir Íslendinga á aflandssvæðum frá árinu 2016 lögðu fram þarf að svara með skýrum hætti. Og það hefur ekki verið gert. Það leikur enginn vafi á því að notkun á skattaskjólum til að fela fjármuni og eignir fyrir Skattinum hefur í för með sér fjárhagslegan skaða fyrir ríkissjóð og bitnar á velferðarþjónustu allra landsmanna, líka þeirra sem svíkja undan skatti og hafa í raun sagt sig frá samfélaginu með svikum. Einkennið á skattaskjólum er að skattlagning tekna einstaklinga eða félaga er þar engin eða óveruleg, leynd er tryggð og viðskiptaumhverfið allt ógagnsætt. Smáríki sem bjóða erlendum aðilum heimilisfang fyrir félög til skattaskjóls eru þekkt á eyjum í Karíbahafinu, en þau er einnig að finna í öðrum heimshlutum, á eyjum í Kyrrahafi, Ermasundseyjum, Kýpur og víðar. Sammerkt með þeim er að þetta eru fátæk ríki með veika innviði. Það fé sem komið er undan skatti í öðrum ríkjum kemur ekki íbúum þessara landa til góða. Við Íslendingar verðum að veita Skattinum nægilegt fjármagn í eftirlit og flóknar skattrannsóknir til að uppræta þessa meinsemd í samfélagi okkar, bæta löggjöf þar sem bóta er þörf og vinna með öðrum þjóðum. Íslensk stjórnvöld þurfa að gera betur. Framganga þeirra má ekki vera hjáróma og ruglingsleg eða hljóma eins og undanbrögð í baráttunni við skattsvik, sem eru um leið svik við samfélagssáttmálann.