staða bólusetninga og sóttvarnaráðstafana, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja máls á þessu. Eins og fram kemur í máli þingmannsins var það ekki svo að hægt væri að keyra nákvæmlega þennan hóp út úr einhverju kerfi án þess að aðdragandi væri að þeim tímapunkti. Það er líka rétt sem fram kemur í máli hv. þingmanns að þar eru sjónarmið eins og persónuverndarsjónarmið. Þessi hópur var flokkaður undir hópinn undirliggjandi eða fólk með undirliggjandi ástæður sjúkdóma í ljósi þess að þarna er um nána aðstandendur að ræða. Það var og reyndist hafa verið, samkvæmt þeim upplýsingum sem ég fæ frá embætti landlæknis og sóttvarnalækni, erfitt að finna út nákvæmlega hverjir væru í þessum hópi. Framkvæmdin, bæði forgangsröðun og síðan framkvæmdin á bólusetningunni sjálfri, er hjá sóttvarnalækni og svo hjá heilsugæslunni. Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég fæ núna í tilefni af fyrirspurn hv. þingmanns, eiga öll í þessum hópi að vera búin að fá bólusetningu núna. En ég tek undir þau sjónarmið hv. þingmanns um að þessi hópur er mikilvægur, en það eru margir hópar mikilvægir eins og fram hefur komið. Ég fagna því sérstaklega að þessi hópur er kominn í skjól.