151. löggjafarþing — 104. fundur,  1. júní 2021.

staða bólusetninga og sóttvarnaráðstafana, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[14:36]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Í fyrsta lagi deili ég með hv. þingmanni áhyggjum af vinnumarkaðnum og atvinnulífinu. Þó er það þannig að sumt gengur betur en við héldum kannski að það myndi gera. Atvinnuleysistölur fara hraðar niður en sumir spáðu og ferðaþjónustan virðist vera að rétta úr kútnum hraðar en við óttuðumst á tímabili. Það eru því ýmis teikn um að við munum ná að spyrna hraðar frá en leit út fyrir á tímabili. Hver er ástæðan fyrir því að okkur hefur gengið vel á Íslandi í glímunni við Covid-19? Ég held að það sé þrennt. Hv. þingmaður nefnir hér samstöðuna í samfélaginu, ég held að það sé algjört lykilatriði. Hv. þingmaður nefnir líka að það skipti máli að fara að ráðum vísindamanna og okkar færasta fólks. Loks vil ég nefna mikilvægi þess að skýr forysta hefur verið í málinu, það hefur líka skipt afar miklu máli. Eins og fram hefur komið þá skiptir líka máli að vera raunsæ en horfa um leið á tölurnar og horfa á stöðuna og sjá hvar við erum stödd. Við getum sannarlega verið ánægð með þá stöðu sem við erum í núna. Hér áðan var talað um stöðu okkar í bólusetningum í Evrópu en staðan er þannig í dag, 1. júní 2021, að Ísland er í 15. sæti í heiminum í bólusetningum.