staða bólusetninga og sóttvarnaráðstafana, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegi forseti. Sennilega hafa aldrei verið stigið eins stór skref á neinu kjörtímabili og akkúrat núna í geðheilbrigðismálum. Það hefur verið gert þrátt fyrir Covid en líka að hluta til einmitt vegna Covid. Við höfum bætt inn 800–1.000 millj. kr. í rekstrargrunn geðheilbrigðisþjónustunnar á öllum þjónustustigum og fyrst og fremst í heilsugæslunni þar sem við höfum sett á laggirnar geðheilsuteymi um allt land. Það skiptir mjög miklu máli. Það eru 250 milljónir fráteknar á þessu ári til þess að ganga til samninga við sálfræðinga. Ég vonast til þess að það gangi fljótt og vel eftir. Ég er ekki viss um að heilbrigðisstofnanir úti um land líti á 600 milljónir sem smartís. Ég held að það muni skipta máli til að geta bætt þjónustu við fólk sem þarf á þjónustunni að halda. En við höfum líka vegna Covid lagt til 540 milljónir á síðasta ári og 540 aftur á þessu inn í geðheilbrigðismálin vegna þess að þau skipta miklu máli, en ekki bara á þeim enda sem lýtur að þjónustu við þau sem þurfa á geðheilbrigðisþjónustu að halda heldur ekki síður vegna þeirrar staðreyndar að það kemur okkur öllum við, bæði félagsþjónustu, skólum, heimilum og fjölskyldum o.s.frv., hvernig geðheilbrigði er háttað í samfélaginu. Við höfum öll fundið fyrir því að það reynir á geðheilbrigði okkar í Covid og þeim áskorunum sem Covid fylgja þannig að ég vænti þess að það verði áfram viðfangsefnið. En við þurfum að horfa á það verkefni frá öllum hliðum, bæði hliðum forvarna og lýðheilsu og hliðum heilbrigðisþjónustunnar sjálfrar.