151. löggjafarþing — 104. fundur,  1. júní 2021.

staða bólusetninga og sóttvarnaráðstafana, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[14:52]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Þegar við berum saman stöðuna í bólusetningum á milli landa sjáum við vel hversu dýrmætt það er að hafa sterka innviði, þ.e. að vera með þannig fyrirkomulag að það sé góð skráning á fólki og skýrt hvar bólusetningar fara fram. Við höfum farið þá leið að boða fólk í bólusetningu en ekki hina leiðina, sem sums staðar er gert, þar sem fólk þarf að skrá sig í bólusetningu. Það hjálpar mjög mikið. En hitt atriðið, sem skiptir líka gríðarlega miklu máli, er viljinn til bólusetningar. Íslendingar hafa alltaf verið í þeim hópi í heiminum sem hefur verið mjög jákvæður gagnvart bólusetningum. Við höfum tekið tiltölulega mikinn þátt í bólusetningum almennt, hvort sem það eru bólusetningar barna eða annarra, þannig að það virðist fylgja okkur inn í þessa stemningu núna. Ég vænti þess að áfram muni ganga vel að ná í fólk. Ég hef ekki fengið upplýsingar um neitt annað. Það eru líka ákveðin sjónarmið sem gætu orðið hvatar til þess að fólk vildi frekar láta bólusetja sig, þ.e. ef það snýst um að eiga auðveldara með að ferðast og komast milli landa o.s.frv., sem mun kannski ekki síður skipta máli hjá ungu fólki. Ég held því að hér eftir sem hingað til ætti okkur að ganga vel og ég vonast til að áfram verði það yfirbragð á bólusetningum hér að okkar fólk taki mikinn þátt í þeim.